14. janúar 2008 klukkan 23:49
Líkt og ég gerði í eirðarleysi í október 2006 þá ætla ég að renna lauslega yfir árið sem var að líða og sigta út hvaða viðburðir og hverjir stóðu uppúr Dagbók Babú-wise. VIÐBÓT, nú þegar ég er búinn að gera þessa færslu og á bara eftir að fara yfir sé ég að þetta er ein sú stærsta ef ekki stærsta hjá mér frá upphafi.....og standardinn er hár
Topp 10 - Djammhelgar/dagar
1. Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum 2007 - Part 1 & Part 2
Líkt og í fyrra þá er ekki nokkur einasti vafi á því að Þjóðhátíð í hafi staðið uppúr og rúmlega það í ár og raunar toppaði þessi helgi enn eina ferðina þjóðhátíðina frá árinu áður. Núna vorum við 10-16 manna hópur saman í íbúð sem var alger snilld og líklega var þetta hápunkturinn hjá þeim góða og þétta hópi sem hefur verið að myndast sl. 2-3 ár, enda afar samstilltur hópur í húmor sem er..........í byrjun alls ekki allra, þó flestir sjái að sér eftir smá tíma og a.m.k. flissi með.
Gott dæmi hvað það er tímafrekt að fara yfir þetta þá las ég helvítis þjóðhátíðarfærsluna aftur sem ég þurfti að gera hana í tveimur pörtum....segir þeð ekki allt sem segja þarf um þessa helgi sem þó er afar erfitt frá að segja!!!
Þriðjudagurinn eftir eyjar var svo sá þreyttasti sem ég hef vakað.
Ef þú ert ekki sammála þessu vali á djammhelgi ársins, spurðu þá Rabbabara.
Maður/menn helgarinnar: Glans/Matt Inc var í stuði
2. Þýskalandsferð
Í júlí fór ég með algjörri snilldar blöndu af vitleysingum í frekar óvænta ferð til Þýskalands, fyrst til Berlín og þaðan í stórskemmtilegri bílferð yfir til Lubekke þar sem Þórir Ólafs býr. Tilgangur ferðarinnar var að hjálpa Þóri að flytja ALLT dótið þeirra milli íbúða innanbæjar sem tók einn dag,hina 4 dagana var bara frjálst.................og þessi hópur getur orðið ansi súr þegar honum er gefinn svona mikill tími saman í þynnku og/eða bjórdrykkju :-)
Maður/menn helgarinnar: Þórir, Andrés, Óskar, Babú og Illugi Gunnarsson ;) Vonlaust að gera upp á milli.
3. Óvissuferð Árborgar og lokagigg Pakkhússins
Í júlí toppaði Árborg enn eina ferðina óvissuferðina sína frá árinu á undan með hreint hrottalega góðri óvissuferð sem að vanda var í höndum Leifs Viðars að skipuleggja, slíkt klikkar sjaldnast. Illa gekk að finna driver í þetta verkefni framan af en á endanum sá Ívar nokkur Gylfa um það fyrir slikk. Ívar hafði einmitt skælbrosandi á orði eftir ferðina að hann hefði nú oft keyrt svona hópa og séð marga vitleysuna....en þetta hefði klárlega slegið allt út, honum til varnar þá gekk afar illa að halda hópnum í fötunum þennan dag.......Ívar var svo fljótur til okkar aftur með bjór í hönd þegar hann hafði skilað af sér rútunni, miklu seinna en upphaflega var samið við hann um. Frábær ferð í sól og blíðu.
Maður/menn helgarinnar: Leifur Viðars á þetta skuldlaust með Ívar sem strong second.
4. Apefest hið síðara
Þetta hefði reyndar líka getað komið í þriðja sæti enda var seinna Apefest ársins hreint út sagt algjör snilld, kjarninn úr hópnum sem hefur gert síðastliðnar þjóðhátíðar sem bestu djömm ársins var þarna samankominn í þvílíku stuði og hélst grínið frá því fyrsti bjór var opnaður á föstudeginum og þar til síðasti bjórinn var drukkinn á sunnudeginum, síðan tóku við tveir AFAR þreyttir dagar.
Maður/menn helgarinnar: Davíð Svanur er held ég vel af þessum titli kominn og Unnar Steinn kom einnig með STERKA innkomu.
5. Mýrarboltamót og OFL comeback
Þetta var ein af þessum snilldar sumarhelgum, á föstudag var Fannar búinn að plata mig í Toni & Guy útilegu sem á endanum var ég,Fannar, Óskar, Unnur og Sandra á steindauðu fjölskyldutjaldstæði í Þjórsárdal, samt bara fínasta kvöld. En laugardagurinn var síðan snilld þar sem við létum á endanum plata okkur í snilldar Mýrarboltamót og fórum svo um kvöldið á LANGÞRÁÐ OFL ball, en sú sveit hafði greinilega engu gleymt og rjúkandi stemming á þessu næstsíðasta balli Pakkhússins.
Maður/menn helgarinnar: ÓskarEi var öflugur þessa helgi, eins fá Ninnó og OFL sérstakt prik.
6. Grundarfjörður á górði stund
Í byrjun nóvember fór ég ásamt þeim Dúdda, Gumma Þór og Sævari Sig í svakalega súra snilldarferð á Grundarfjörð til hans Andrésar. Við ætluðum alltaf að taka eitt djamm þar og fyrst kallinn er að flytja þá var ákveðið að skella sér vestur. Það er óhætt að segja að menningin á Grundó sé aðeins öðruvísi en maður þekkir hérna fyrir sunnan og ekki skemmdi fyrir að Drési kallinn er kóngurinn þarna fyrir vestan....eða svona hér um bil ;) Fyndið líka að það tala flestir þarna eins og Örvar Ólafs fyrir þá sem skilja hvað ég meina með því.
Maður/menn helgarinnar: Andrés Önd fær á þetta skuldlaust.
7. Árshátíð.....verkfræðinema og súrasta partý sögunnar
Þessi helgi kemst svona ofarlega á listann á svolítið öðruvísi forsendum, því þó að þetta hafi verið góð og gild djammhelgi þá er ég ekki viss um að hún myndi sitja mikið eftir ef ekki hefði verið fyrir súrasta partý sem ég hef farið í!!! Við fórum nokkrir yfirum í súrleika og aulabröndurum....en allt byrjaði þetta á því að Einar Glans rakaði af sér hárið!!!
Maður/menn helgarinnar: Einar Glans og Hebbi Viðars fyrir fötin og þetta með Byrgismálið.
8. Sumarbústaður Bryndísar
Einhverrahlutavegna var ég búinn að ákveða að vera bara frekar rólegur þessa helgi, fór í bæinn og lagðist upp í sófa .......þá hringdi Már og sagði mér að drullast austur, við værum að fara í bústaðarpartý!!! Ég auðvitað hlýddi og gamli góði kjarninn, The bold, the blind and the midget sýndi að það þarf ekki marga til að við getum skemmt okkur vel, hvar sem er. Á laugardeginum fórum við svo aftur upp í bústað til Bryndísar og þeirra en nú í mun stærra partý, ekta sumarbústðarfílingur, og óvænt djamm, þessi óvæntu og óskipulögðu vilja oft verða góð.
Maður/menn helgarinnar: Kjarninn(Már, Leifur, Babú) og Bryndís Erlings, "takk fyrir kvöldið"
9. Steggjun dauðans....bókstaflega hjá steggnum
Eins og Unnar Steinn hafði óttast lengi vel ákváðum við vinir hans að kála honum fyrir það að hafa beiðið Fanný um að giftast sér. Sú aðgerð var þaulskipulögð með milljón tölvupóstum og tveimur fundum sem reyndar fjölluðu minnst um steggjunina og langt á undan áætlun var Unnar lagður til hinstu hvílu heima hjá Þóa klukkan 18:00, klúkkutíma eftir að hann drapst með tilþrifum í 101. Snilldar dagur engu að síður fram að því ...og reyndar eftir það líka ;)
Það getur líka verið að Unnar sé algjör hæna.
Maður/menn helgarinnar: Unnar Steinn klárlega
10. Páskar og þjappa hjá Árborg
Að lokum set ég inn páskahelgina, hún var ansi mikið óráðin og munaði t.d. hársbreidd að eg og Fannar færum á Akureyri. En þar sem við fengum ekki gistingu þar ákváðum við að fara til Unnars í Keflavík. Daginn eftir var síðan þræl öflug þjappa hjá strípalingunum í Árborg sem hlupu að vanda á klæðum Adams......nú í miðbæ Selfoss.
Maður/menn helgarinnar: Gunnar tvíburi átti "rokkhlaup" ársins .
Þetta var ekki mjög ítarlega hugsaður listi hjá mér og það koma fullt fullt af helgum í viðbót til greina sem líklega eiga alveg eins heima á þessum lista:
Tipparapartý Árborgar og Bústaður hjá Guggu
HR útilega, Menningarnótt og andlát Boris - (myndir þær síðustu sem Boris tók)
Grenivíkurferð
Brúðkaup Unnars
Apefest hið fyrra
OFL ball milli jóla og nýárs
Áramótarpartý í Starmóanum 1.jan 2007
og margt margt fleira, hægt að skoða allar Dagbækur fram til okt hérna vinstra megin á síðunni.
Topp 10 Djammfélagarnir
Líkt og í fyrra þegar þessi listi var gerður hafði ég úr að velja þó nokkuð stóran hóp vitleysinga sem hafa komið mismikið við sögu þetta árið, það skal þó tekið fram að ég vel út frá Dagbók Babú momentum sem gæti orsakað fjarveru fjölmargra þarna........
1. Leifur
Þar sem Már hefur verið í þó nokkrum meiðslavandræðum á árinu held ég að hann og Leifur Viðars hafi sætaskipti á þessu ári. Ég var meira í Reykjavík en oft áður á þessu ári og við þurftum að glíma við fáránleg vesen eins og lokun skemmtistaðar og þess háttar og því kannski ekki alveg 92% djammana eins og 2006. Engu að síður voru þau nú ekki mörg stóru djömmin sem Leifur var ekki einhverstaðar nálægur eða með puttana í skipulagningu og því er kappinn vel að fyrsta sætinu kominn og er því djammfélagi ársins, en það er svipað mikil virðing innan karlaheimsins á íslandi og það er að vera leikfélagi ársins hjá Playboy í stelpuheiminum.......ok kannski ekki alveg.
ATH: Heimavöllur Dagbókar Babú hefur jafnan verið þar sem Leifur býr og enn eitt árið verður skipt um heimavöll. Á næsta ári spái ég því að Leifur nýti í að djamma af sér rassgatið enda síðasta árið sem það er næstum því hægt að telja hann sem ungann mann, hann mun slíta sér út í húsbyggingu, taka upp plötu á miðju árinu með los Klaufos sem færir honum síðan sína aðra gullplötu í lok árs.
2. Már
Hefur átt örlítið rólegra ár heldur en árið áður en fer þó léttilega í annað sætið rétt á eftr Leif. Már varð á dögunum formlega gamall og það er hætt að skína eins skært í skallann hjá honum og gerði áður. En þó sagt sé að Máser hafi verið rólegri hvað Dagbók Babú varðar skal tekið fram að standardinn var settur hátt árið 2006. Már á mikið inni engu að síður sem hann sannar jafnan í stóru leikjunum. Árið 2008 mun Már verða mikið mun rólegri en undanfarin ár, kallinn er farinn að eldast eins og áður segir og stuðullinn í barnaleiknum er farinn að hækka ört.
3. Óskar
Skari átti þó nokkuð öflugt ár og var lykilmaður í stærstu momentum Dagbókar Babú árið 2007. Reyndar er aldurinn einhvað farinn að segja til sín og þvi var Óskar óvenju mikið sofandi þetta árið......og fullt oft nánast/eða uppí hjá mér!!!! Eins afrekaði hann það að opna víðsvitandi hurðina á klósettinu þegar hann vissi að ég væri á dollunni.....það er ekki það snjallasta. Gullkorning hjá Skara eru annars óteljandi, t.d. "Einar beygðu þig, ég ætla að ná mynd af turninum" (hæsta hús Berlínarborgar)
Á næsta ári verður Óskar settur í neautral og um mitt ár byrjar hann að skrifa nýjan kafla sem meira verður fjallað um á barnaland.is heldur en hérna. Það er þegar búið að skrifa fyrsta kaflann en það gerði hann með því að tryggja sér Björgu betur áður en þessi færsla kæmi inn. En og aftur til hammó kid´s. Stefnir í stórt og fjölmennt ár hjá Skara og Björgu.
4. Fannar
Fannar kom mikið mun öflugri inn þetta árið heldur en árið 2006, hann var í aðeins skaplegri vinnu og því ekki eins mikið að vinna um helgar ásamt því að Dagbók Babú var óvenju oft sviðsett í borg óttans sem er heimavöllur Fannars. Árið 2008 verður Fannar líklega mjög mikið í höfuðborginni enda kappinn kominn í skóla....já skóla og þar er lítið annað gert en að djamma.
5. Glans
Einar Glans var kannski ekki með neitt rosalega mætingu en þó öllu skárri heldur en árið áður. Hann býr ásamt Má á æfingasvæði landsliðsins sem hefur hjálpað þó nokkuð. En það er óhætt að segja að það hafa verið gleðitíðindi fyrir Dagbók Babú þegar Glansinn er með þó oftast sé með öllu VONLAUST að sviðsetja momentið nákvæmlega, Einar Glans er king of the had to be there moments. Án þess að ég viti hvernig foreldrafundurinn fór þá held ég að Glans verði örlítið rólegri á þessu ári (nenni ekki að finna mydina) en það verður ALDREI langt í húmorinn.
6. Vignir
Reyndar gæti vel verið að Viggó ætti að vera ofar á þessum lista enda afar sjaldgæft að Dagbók Babú hafi verið gerð án þess að Viggó hafi einhverstaðar verið nálægur, hvort sem um er að ræða Selfoss eða Reykjavík. Vignir hefur engu að síður farið afar mikið aftur í kunnáttu á klukku, hann fékk nýtt tölvuúr og kann ekki á það og er því allajafna svona 2-3 tímum á eftir áætlun í partýið. Það hefur reyndar borið minna á Viggó (og Leif reyndar) í partýunum þar sem minna hefur verið um gítarleik að mér fannst. Á næsta ári kemur Viggó til með að setjast á skólabekk (held ég) og þar með detta inn í skóladjamm pakkann.
7. Andrés
Það var ekki eins mikið um Drésa moment árið 2007 og undanfarin 3 ár þar sem hann flutti til útlanda í byrjun ár, eða á Grundarfjörð. Engu að síður hafa nokkrar snilldarhelgar litið dagsins ljós. Drési átti stórleik í Þýskalandi og Grundarfjörður á górði stund var súr snilld.
Drési hefur boðað komu sína í siðmenninguna aftur á nýju ári og því allar líkur á því að maður nái einni mynd af honum steindauðum í Þórufellinu :-)
8. Stebbi Magni og Rakel
Þar sem það er með öllu tilgangslaust að tala um Stebba og Rakel í sitthvoru lagi deila þau þessu auðvitað saman. Það hafa verið þó nokkur partý heima hjá þeim á árinu til þess að svara fyrir öll partýin sem hafa verið í íbúðunum í kringum þau……þó við séum ekki nógu hávær heima hjá þeim!!! Afar óvenjulegt að við séum sakaðir um að vera ekki nógu hávær hópur. Árið 2008 verður að öllum líkindum mjög svipað hjá Stebba og Rakel og allar líkur á að þau verði enn oftar í Dagbók Babú á næsta ári. Stebbi er þó jafnvel að fara í skóla aftur og þar með að fara brjóta upp Hellu þrenninguna ógurlegu.
9. Hebbi Viðars
Hebbi býr í Staróma og kemur þannig sjálfkrafa sterkur inn og þegar litið er yfir árið hefur hann verið á svæðinu í meiri hluta tilvika og á tillidögum þegar súrleikinn er að ná völdum mætir Hebbson til leiks sem er fram úr hófi súr karakter. Árið 2008 verður í megindréttum eins og hjá Lesson fyrir utan að ég hef mikla trú á Skímó comeback-i.
10. Baldvin
Balli hefur ekki alltaf verið með á stóru helginum en hann var manna duglegastur hjá Árborg FC á þessu ári og þegar allt er talið var aldrei langt í Balla. Hann á því vel skilið að komast á þennan eftirsóknarverða lista. Du ru du du, du du duru dudu dudu duru dudu bam bam…..ect Árið 2008 mun Balli ná þessu stefi bæði drukkinn og ofurölvi.
Svona er mín tilfynning fyrir þessu þetta árið, auðvitað gert án nokkurra útreikninga né neitt mikillar hugsunnar.....
Aðrir sem komu mismikið en þó reglulega við í Dagbók Babú á þessu tímabili eru (ekki í neinni röð)
Jakob, hvarf of lengi í hringiðu 101 menningar til að sleppa inn á topp 10, Jakob Smári var nálægt því samt.
Sævar Gísla, vill ekki tengja nafn sittt við svona lista þó líklega verði hann í topp ten fyrir næsta ár.
Gummi Bergs, ekki mesti djammarinn og því ekki á topp ten Dagbók Babúlega séð
Davíð Svanur, að djamma með Svan er alltaf upplifun útaf fyrir sig, snillingur.
Dúddi, fór nærri því að komast á listan enda tókum við þrjú góð road trip í sumar og drápum Unnar.....þó mér og Krumma sé mjög ósanngjarnt kennt um það.
Unnar, kannski þarna uppi hefði hann lifað lengur, hann hefur áður gefið út að 2009 verði hans ár.
Spergen, hefur dregið mig út á lífið oftar en mann grunar!!!
Þór Bæring, úff vil ekki ræða það!!! Hann gæti komið sterkur inn 2008 í utanlandsferð þess árs.
Björg Björgsson, Fjóla elskan, Addi Braga, Chris scoucer, Gauti "Gautason" Sig, Davíð Svavars/Vala, Búni, Málfríður, Gummi Kalli, Hrafnhildur, Teddi, Ninnó, Margeir (fór útaf í hálfleik greyið), Biggi A, GÁB (smá), Eyþór Jóns, Gestur Gau, Lalli (hann) (verður snúinn aftur í gang 2008), Sævar Sig (London baby, yeah???), Helgi tvíburi, Gunnar, Stefán, Víðir kókmjólkurstrákur, Hildur Gríms (fór eiginlega líka útaf í hálfleik;), Helga "Gríms", Andrea, Halla Karen, Árný, Gvarinn, Sæunn, Bryndís Erlings, Jónína (vá gleymdi þér þar sem þú ert ekki á MSN eða í síma hjá mér), Þórir Ólafs (maðurinn sem gerði flutninga skemmtilega), Svenni Hljóðhús(ekki beint fyrir djamm en þó mikið skotið á hann hérna...enda Svenni svo asnalegur), Linda Friðgeirs, Sverrir Sig,Boris, Slobodan, Þói, Birgitta (uppblásna dúkkan hans Svenna)
.....................................o.fl. sem ég að gleyma (sorry, verið eftirminnilegri bara)
ANNAÐ
Mestu hláturköst Babú á árinu
1. Einar Glans á leiðinni frá heimili Óskars og Bjargar og út á Ölver

"Jæja nú gengur þetta ekki lengur, nú förum og lyftum lóðum"
Ég get svo svarið fyrir það að ég lengdi lífið mitt um tvö ár við þetta had to be there moment og dó næstum því þegar hann gekk í burtu frá okkur aðspurður hvenær hann ætlaði eiginlega að ganga frá okkur!!!
2. Einar Glans í Starmóanum í frekar rólegum gleðskap
"Cambridge hefur tekið upp plötu"
Hann fékk okkur til að koma inn í skúr, bað okkur um að hjálpa sér við að lyfta þessari plötu með sér og sagði þetta svo akkurat á því momenti sem myndin er tekinn!!!
3. Einar Glans og Una "unnusta mín" - Þjóðhátíð í eyjum
Ég get svo svarið það, ég hló af þessu upphátt reglulega í nokkrar vikur á eftir, brandari og had to be there moment sem vann á.......................en Una var að spyrja einhverrar saklausrar spurningar út í hvaða hljómsveit yrði þetta kvöldið eða einhvað, Einar leit á hana, sá það sem var fyrir aftan hana og svaraði að bragði
"Spurðu Rabba bara"
Húmorinn í þessu felst ekki síður í því að Una og vinkonur hennar þekktu okkur ekkert svakalega svona snemma þjóðhátíðar og voru því líklega smá skeptískar í hverskonar aulahúmor þær væru komnar .....................en það var líka mjög mikið vegna þess að við sem þekkjum Glans föttuðum þetta eins og skot og GRÉTUM úr hlátri (insk. ég var búinn að gleyma þessu og er því aftur farinn að hlæja).
4. Óskar Ei á bar í Berlín í Þýskalandi
Eitt kvöldið hittum við íslendinga í Berlín og drukkum með þeim í ca. tvo tíma. Einn þeirra var hinn þjóðkunni Illugi Gunnarsson (þingmaður og gott ef ekki næstum því ráðherra). Þórir var einhvað að ræða við hann um hvað hann hværi að gera í Þýskalandi þegar óskari fer að leiðast þófið, stendur upp af hinum endandum sem hann hafði setið á, þrammar yfir til Illuga og Þóris, hlammar sér hjá þeim og segir..........
"Vissir þú að ég er besti þriðji markvörður í heiminum?"
Ég var nýbúinn að segja við einn sem var með Illuga að hafa ekki áhyggjur þetta spjall myndi ekki verða leiðinda röfl um pólitík, en óskar leit þannig út þegar hann stóð grimmur upp...........þarf svo ekki að taka það fram að þau, ásamt okkur þýskalandsförunum höfðu mjög mikinn húmor fyrir þessu.
5. Unnar Steinn (Babú og Krummi) - Hótel einhvað á móti Háskólabíói
Þó hann hafi ekki verið á því sjálfur þá var Unnar mjög fyndinn klukkutímann áður en hann drapst í steggjuninni sinni.....og við Krummi gáfumst á endanum upp á því að halda niðri í okkur hlátrinum.
6. Óskar Ei - í Beríln fyrir framan hæsta hús Berlínarborgar
"Hey Einar beygðu þig, ég ætla að taka mynd af þér með turninn þarna í bakgrunn"
Óskar náði ekkert sérlega langt á ljósmyndanámskeiðinu.
Stuttu seinna sagði hann svo, "vá langi strætó" þegar gulur sporvagn keyrði framhjá
7. Gummi Kalli og Einar Glans í tipparapartýi hjá Árborg í Sjálfstæðishúsinu
"Þá napurt er það næðir hér........."
Þeir léku MJÖG eftirminnilega lagið Söknuð, allt lagið, og það var mjög kallt í því.
8. Óskar Ei - Eyjar - Herjólfsdalur

Það er engin snilldar setning eða neitt þannig við þetta, ég bara SPRAKK úr hlátri þegar ég sá að steindauði gaurinn hjá hvítu tjöldunum væri Óskar.
9. Einar Glans - sunnudagur í eyjum
Á lokadegi þjóðhátíðar er ég allajafna eins súr og ég verð og þú mátt vera ansi hreint mikið leiðinlegur til að mér finnist þú ekki skemmtilegur og brandarinn má vera ansi hreint slappur til að ég flissi allavega ekki smá, þannig var það t.d að ég mætti Einari Glans í dalnum mjög seint á sunnudeginum (eiginlega mánudeginum) spjallaði örstutt við hann og síðan hélt hann sína leið.........orðum það þannig að það passaði svakalega hjá honum SMS ið sem hann sendi mér svona mínútu seinna og fékk mig enn eina ferðina til að fara gráta....
Í SMS inu stóð: "á svo að skella sér Laugadælahringinn á eftir?"
(ath. myndin tenist þessu ekki alveg 100%)
Ég tek það þó fram að ég hef ekki farið Laugadælahringinn í mörg ár, sama hvað þú ert að meina :)
Einar Glans fór svo hreinlega hamförum þegar ég hitti hann aftur nokkru seinna um morguninn og hefur sjálfur sagt að það toppi hann ekki í bráð
10. Más Más - Apefest hið fyrra
Forsaga hláturkastsins er sú að Pétur Heiðar var búinn að fara hamförum í kellingarmálum á Apefest og var kominn í bullandi klandur, kellingarnar sem hann var búinn að vera með voru farnar að HNAKKrífast og uppnefna hvor aðra og Pétur greyið hringsnérist um gólfið og skildi hvorki upp né niður í neinu....
Svona lýsti ég þessu í janúar.........
"En já úr varð heljarinnar sápuópera....og það um PÉTUR af öllum mönnum sem dansaði ringlaður og stoltur í hringi. Rifrildin stóðu hátt á báða bóga og þegar manni var hætt að lítast á blikuna heyrðist allt í einu hátt og snjallt og það á hrikalega góðu augnabliki.................GAY.......... en þar var Már á ferðinni, ennþá á nærbrókunum að fylgjast spenntur með (besta GAY innslag til þessa)."
Þetta er kannski ekki fyndið nema þú hafir séð þetta, en ég og Fannar hlóum allavega vel og lengi
12. Einar Glans í póker í Starmóanum
Glans hefur ekki alltaf verið með í pókernum en þegar hann hefur mætt hefur hann jafnan skilið einhvað eftir sig, skemmst er að minnast þess þegar (Einar) Matt átti að gera í póker, þá sagði hann, "nú er hann Matt???...............þá er ég Glans", þetta er sagan á bakvið nafnið og ég held að við höfum ekki náð að festa nickename eins fljótt á nokkurn annan mann enda er þetta komið langt út fyrir vinahópinn, gott ef hann er ekki kallaður þetta heima hjá sér. En allavega þá var það í öðrum póker að Glansi sem er ekkert sá sleipasti í spilinu datt út............
Við hefðu líklega getað sagt okkur þetta sjálfir......en já hann semsagt datt út.
13. Hebbi Viðars - í súrasta partýi sögunnar í Starmóanum
Við vorum einhvað að tala um Árna Birgis, einhvað tengd Tantra FC minnir mig þegar Hebbi Viðars kemur af klósettinu með þjósti og segir.....
"Strákar ekki ver að tala um Árna Birgis, hann er rosalega vðkvæmur fyrir þessu út af Byrgismálinu"
Við svo búið fórum við að grenja úr hlátri enda Byrgismállið í hámarki og í hönd fór súrasta partý sem við höfum haldið sem því miður var eitt stórt had to be there moment, eins og sést á þessum brandara sem hittir ekki í mark svona á prenti. En upprifjunin fær mann til að hlæja...og líklega þá sem voru viðstaddir
14. Einar Babú - Pullarinn
Ég gat hlegið mjög mikið af sjálfum mér þegar ég sá þessi tvö og kallaði

"Hey tvíburar"
15. Andrés bakari og óskar Ei - 8 tíma bílferð frá Berlín til Lubekke
Þar sem ég var drukkinn og eiturhress var það eitt stórt bíó og hláturkast fyrir mig að sitja með Andrési og óskari heila átta tíma bílferð. Þeir hafa hvorugur oft verið svona þunnir, óskar t.d. ældi í poka á hraðbraut og Andrés fékk krampa í löppina stuttu seinna sem var á mörkum þess að vera of fyndið.

Á einhvern ótrúlegan hátt enduðu þessir vitleysingar samt á því, þunnir eins og þeir voru að fara í hægasta kapp sögunnar, út að þessum bíl og til baka.........no reason whatssoever, sjáði þarna ferðina á Andrési......en því miður ekki okkur Þóri Ólafs grenjandi úr hlátri.
Annað gott fra Berlín er svo t.d. rándýru, FORLJÓTU og vondu inniskórnir sem Andrés keypti sér og svo ég tala nú ekki um það þegar Óskar kippti stólnum "óvart" undan Andrési sem við það missti skiljanlega jafnvægið og datt með miklum látum á tveggja metra háan matseðil sem var fyrir aftan sig og síðan á gólfið. Nota Bene það var fullur salur af fólki þarna og líklega hefði okkur verið hent út hefði þetta ekki verið svona helvíti fyndið.........ég btw. hló of mikið til að fatta að taka mynd af þessu. (mynd af afleiðingum falls Andrésar á matseðilinn)
16. Einar Glans hver annar - Selfossvöllur, Hnohni - FC Flói, bikarúrslit
Einar Glans er góður og gildur Hnohna FC maður og hvetur allajafna sitt lið dyggilega. Einhvað ruglaðist hann þó í rúminu í þessum leik því líkt og strákarnir á bekknum við hliðina á Hnohna liðinu höfðu kallað oft og iðulega yfir leiknum tók Glans sig til á frekar dauðu momenti og öskraði hátt og snjallt

"KOMA SVO FLÓI.........NEEEEIIIII"
það þarf ekki að taka það fram að allir viðstaaddir hlógu vel og lengi að þessu, sama hvoru liðinu þeir héldu með...............og það þarf svo heldur ekki að taka það fram að Glans fékk stuðningsmannaverðlaun á slúttinu.
Jesús, þetta var nú bara það sem ég tók út eftir lauslega yfirferð yfir dagbækur ársins, það er ekki neitt rosalega fljótlegt að renna yfir þær, en þetta coverar þó ekki NÆSTUM ÞVÍ ÖLL golden moments frá þessu ári enda verða svona 5-15 á hverju djammi. Þið bætið bara við í kommentunum því sem vantar hérna uppá.
Topp óþægilegu eða hræðslu moment ársins séð frá Dagbók Babú
1. Leifur Viðars - chicken við vörubíl
Leifur fór í einn á einn við vörubíl í janúar og því bara átta líf eftir núna.
2. Leifur Viðarsson - Reyndi að drepa mig
Leifur fékk að gista heima í Hagaselinu einhvert laugardagskvöldið, ég var einhvað að djamma niðri í bæ og hann að spila á Players. Það hittist síðan þannig á að Leifur kom ca. mínútu á undan mér heim og faldi sig því í runna fyrir utan heima. Það þarf ekki að taka það fram að það er mjög dimmt þarna og því missti ég hjartað í buxurnar þegar hann stökk fram úr runnanum og öskraði BÖÖÖÖÖÖÖHHHH...............ég á því líka bara 8 líf eftir núna.
3. You guessed it, Leifur Viðarsson
Í frekar súrri Hróa Hattar ferð þar sem ég fékk mér m.a. barnabox gaf Leifur okkur "smá" scare, t.d. þegar hann "réðst" á Vigni með hnífapörum......................en eins og virkaði alltaf á mig í den þá dugði að gefa litla skinninu kók til að róa hann.
4. Már Más - Pakkhúsið
Már fann upp á einhverri fljótlegustu leið í heimi til að láta renna af fjölda manns þegar hann í miðju hláturskasti hreinlega lognaðist útaf og small í gólfið!!! Hann vaknaði þó ca. 10.sek síðar og krufning daginn eftir leyddi í ljós kvef asna....eða astma. BTW þegar ég spurði hann einfaldrar spurningar til að tékka á því hvort hann væri í lagi, þar sem hann lá í gólfinu..
Babú: Hverjir urðu evrópumeistarar 1999?
Már: piff það var ekki evrópukeppni 1999
Ég tek það fram að Már er United maður en hugsaði samt fyrst um EM!!! En hann var allavega klarlega í lagi
5. Dauð mús - Sumarbústaður Bryndísar

Ég hata mýs..........verst að mér er meinilla við ketti líka....en er þó ekki neitt hræddur við þá
6. Elvar Gunnarsson -Pakkhúsið
Elvar sagði í byrjun árs að hann hygðist loka Pakkhúsinu.....og helvítið á honum stóð við það.
Topp þynnku eða dauða myndirnar
1. Óskar Ei - í dalnum á þjóðhátíð

Ég er að segja það, hvernig toppar maður þetta?
2. Einar Babú - á baðkari til betlehem

ok ég fór nálægt því að jafna óskar, Viggó vaknaði við hrotur/drunur innan af baðherbergi, tók mynd og fór siðan aftur að sofa.......og leyfði mér að lúlla áfram í baði. Það var ekki fyrr en Gauti kom að pissa að ég vaknaði, dró tjaldið frá og Gauta brá svo mikið að hann pissaði næstum því yfir mig
3. Einhvar random- fyrir utan Tvistinn í eyjum

Það voru ekkert smá margir dauðir út um alla eyju á sunnudagsmorgninum
rétt eftir að ég var búinn að sjá þennan gaur fór ég heim (í húsið beint á móti kirkjugarðinum) og sá.....
4. Sverrir Sigurjóns - eldhúsgólf

síðan fórum við á flugvöllinn
5. Sverrir Sigurjóns - í tveggja tíma biðröð á flugvellinum í eyjum ofan á töskum frá þeim sem voru nálægt okkur í röðinni

ég fékk svo bara hina og þessa til að hjálpa mér við að draga Sverri áfram þegar röðin hreyfðist.
6. Sverrir Sigurjóns - fyrir utan 2. tímum seinna

ég náði að drösla honum út þar sem hressleikinn var í fyrirrúmi
7. Leifur og Fannar heima í húsi

ég efa að þeir hafi vakað lengi eftir að þeir komu heim
8. Leifur og óskar - að degi til í eyjum

það fyndna við þessa mynd er að hún er ekki hætishót uppstillt, þeir sofnuðu svona
9. Babú og Már - Starmóa
Við sofnuðum svona eftir erfiða sumarbústaðarerð, reyndar vorum við fjórir þarna til að byrja með en Glans og Leifur fóru.......Hebbi tók hinsvegar þessa mynd þegar hann kom heim og lét okkur sofa áfram.
10. Hresst fólk á Pakkhúsinu
það var oft svo heimilislegt á Peiker
11. Jörg óskar Eiríksson
það vita það ekki allir en þarna undir hvílist steindauður maður sem ég bókstaflega hélt á síðustu metrana inn á hótelherbergið á Park Inn .................síðan fór ég út aftur að leita að Drésa....sem er önnur og fyndin saga..
daginn eftir var 8. tíma ferð til Lubekke fyrir höndum
12. Óskar og Andrés - í bíl í Germany

Þeir settu þynnkumet þarna, þó aðallega óskar sem var þunnur í tvo daga.
13. Andrés bakari - heima hjá sér á Grundó
Að lokum er svo auðvitað drési bakari í kunnuglegum stellingum en hann var svo vitlaus að fara á undan heim að sofa
nei ég gleymi einum bjána......
14. Þór Bæring - í leigubíl og svo heima hjá mér á sófanum

......verst þótti mér að hann vaknaði alls ekki þar sem hann sofnaði!!!
15. Einar Babú - á vindsæng í hagaselinu
Síðan vantar mig mynd af líklega fyndnasta atvikinu þegar ég sofnaði á vindsænginni sem ég var nýbúinn að blása upp fyrir Einar Glans þegar ég var að búa um hann í stofunni heima..................Glans var ennþá á vindsænginni sko og rúmið mitt stóð autt alla nóttina ;-)
..................seinna skiptið sem Glans svaf heima sofnaði ég líka ekki í mínu herbergi heldur herberginu við hliðina á stofunni.
Þetta eru bara þau moment sem ég fann mynd af í fljótu bragði, ætti að eiga mikið mun fleiri golden dead moment frá þessu ári. Bendið mér bara á þau þá.
Ársins
Gay moment ársins - Kobbi að sjálfsögðu
Sigurvegar - Jakob Björgvinn Jakobsson auðvitað með myspace könnun sem fékk mig til að hlæja vel og lengi enda svarið þremur of innilegt:
If you weren't straight, what person of the same sex would you do?
Pottþétt Jude Law eða Matthew McConaughey. Eftir því hvort ég myndi vilja einhvern geðveikt sætan eða einhvern með geðveikan líkama! Vááá... ég er samt ekki gay!!!
Eitt af þessum macho momentum hjá Kobba
Sætasta stelpa ársins - Bryndís Odds
ATH: það var bara valið út frá þessari mynd
og þar sem ég er loksins hættur að nenna þessu þá vel ég að lokum:
MAÐUR ÁRSINS HJÁ DAGBÓK BABÚ
1. Einar "Glans" Þorgeirsson
Maðurinn hefur gjörsamlega farið á kostum á þessu ári og ég vona að þessi upprifjun hafi gefið þeim sem ekki vita hvað ég er alltaf að meina smá innsýn í það afhverju okkur finnst það. Það voru yfirmenn Dagbókar Babú, þeir Einar, Már og Leifur sem sáu um að velja mann ársins og hefur valið aldrei verið eins einróma í áliti sínu.
Aðallega vegna þess þó að ég spurði þá aldrei (þarf þess ekki) og hef aldrei valið þetta áður.
2. Óskar Eiríks
Eins og þessi upprifjun sínir líka þá hefur Óskar átt þó nokkur golden moments þó hann hafi ekki alltaf ætlað sér það og því einnig einróma álit dómnefndar að setja hann í annað sætið.
3. Partýþjónustu fyrirtækið og lengst af kjarninn í landsliðinu og dómnefnd Dagbókar Babú (enginn klíkuskapur í þessu vali neitt) Babú, Máser og Leifur. Við hljótum nú að komast á blað þar sem þetta snýst að megninu til um það sem við gerum.
Vonandi höfðuð þið jafn gaman af þessu eins og ég, ég er búinn að vera að þessu með hléum og gríðarlegum netvandræðum í 2-3 daga og á stundum hlegið mikið við upprifjunina. Gaman væri að fá (jákvæð og hressileg) viðbrögð við þessu og ykkar skoðanir ;-)
Svo ég segi enn og aftur og meina það núna, takk fyrir hið ágæta ár 2007 megi 2008 verða ennþá öflugra.
