Auglýsing

Babú

  • Nafn: Einar Matthías
  • Netfang: einarm@ru.is
  • Stađur: frá Selfossi

MSN og mail

einar_matti@hotmail.com
einarm@ru.is

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Teljari





Statscounter





Leit

Boring Boring Nóvember

29. nóvember 2006 klukkan 06:15
Eins og allir námsmenn vita er nóvember alls ekkert skemmtilegasti mánuður ársins, það er kallt, dimmt, hálka, blindandi sól, allt skemmtilegt búið eða ekki byrjað (sumar - jól) og það sem verst er, skólinn er með öllu kol geðveikur. Hjá mér hefur þetta ekki verið neitt öðruvísi......nema kannski að í þetta skiptið er ég námsmaður í síðasta sinn (í bili allavega). Þannig að sl. vikur hafa verið helgaðar ritgerðarsmíðum, verkefnaskilum og núna þegar ég er búinn að skila, prófundirbúning sem ég er ekki alveg að nenna.

En  eins og venjulega hefur Boris ekki verið langt undan og hjálpar mér við að gefa ykkur betri innsýn í þennan mánuð hjá mér. (Ath. þar sem ég er kominn í samstaf við Dave um að hosta myndir má alveg eins búast við því að ég verði ennþá geðveikari í að hosta myndir þar sem það er mun auðveldara núna að setja þær á netið)

En já, í þessum mánuði var til dæmis síðasti skóladagurinn á ferlinum, við áttum að skila og flytja kynningu á verkefni þannig að það var um að gera að vera ferskari en Subway svona á lokasprettinum...........


Fribbi sessunautur minn var að sýna gamalkunna F.Su. takta frá mér í tímanum en hann greyið sem segist alltaf vera manna ferskastur var ekki alveg að meika þennan tíma...... eitthvað verið langur dagur á Sólon kvöldið áður (hann "vinnur" þar sko)


Nokkrum mínútum seinna var Fribbi ennþá í nákvæmlega sama stuðinu.......gott ef hann var ekki líka sofandi þegar við fluttum verkefnið.


Where is any key - á þessum þremur árum hefur gáfnafarið farið hratt niður á við og er núna rokkandi frá því að vera á pari við Homer Simpson og Peter Griffin.

Því til stuðnings.......


....JÁ mongólíti já    (nei Drési ég er ekkert fífl ;-)

Íbúiðn hefur að sjálfsögðu..........

....verið eins og hjá piparsveinum á niðurleið sæmir.
Tókum reyndar því miður til um daginn þegar íbúðin datt yfir óhreinismörkin og það hefur skemmt allt heildarlúkkið á henni. En uppvaskið er náttulega oft látið bíða þar til allt leirtauið er búið....... þá er þrifið og byrjað upp á nýtt :-)


Hey já Bubba sis hefur verið alveg einstaklega ólétt undanfarið, í raun svo mikið að hún verpti um daginn og fór ég (Borislaus eins og álfur) að skoða gripinn í gær, strákur sem gegnur undir tveimur nöfnum þar til annað kemur í ljós.... Lille Grís 2 eða Einar litli (ég samdi bæði!!!!)
En þetta er náttulega bara gæji og það sem meira er þá heefur hann mjög svipaðar hugmyndir um lífið og ég.....SOFA, SKÍTA, ÉTA, SOFA, SOFA AÐEINS LENGUR, SKÍTA BETUR EN SÍÐAST, ÉTA AFTUR OG LEGGJA SIG EFTIR MATINN.

Annars höfum við Drési verið mikið uppteknir af því að gera lokaritgerðina okkar (Kostnaðargreining fyrir Eggjabú) hvort sem það er upp í skóla eða hér heima............

Í tilefni af þessari myndatöku gluggaði Drési meira að segja í bók........líklega í fyrsta skipti á önninni :-)


Við sko finnum vanalega tóma stofu og stillum þessu upp svona.
 

Wonder why my back hurts....


Annars til að útskýra betur þessar súru myndir sem sína okkur Drésa vera að læra einu sinni sem oftar upp í skóla er ágætt að hafa í huga að klukkan er ekki 20 mín í sex fyrir kvöldmat.......... fór btw. að sofa kl. 9 þennan morguninn.......Sem er bara ekkert svo langt frá því að vera eðlilegt hjá mér þessa dagana.


....Og já, þið ykkar sem eruð í HR Höfðabakka, TIL HVERS Í FJANDANUM ER ÞETTA DÓT NOTAÐ? (ég er mikið búinn að leika mér með það)


Já svo skaust ég austur með Fannza um daginn og kíkti á Pub Quiz (þetta er daginn eftir lærudaginn sem myndirnar hérna fyrir ofan sína, en ég vaknaði kl:18 þann dag). Þegar upp var staðið vorum við bölvaðir klaufar að vinna ekki þetta pub quiz, náðum þó báðum bjórspurningunum og þar sem Fannar var að keyra hafði ég nóg að drekka Svalur


Tóta og Lilija unnuog voru OFUR KÁTAR MEÐ ÞAÐ (Lilija þ.e.a.s.)


Hver í fjandanum var að segja að Már væri ekki með neitt hár??? (BTW Már, ekki svona skoru-myndir, við vorum búnir að ræða þetta)



Sunnudagurinn fór síðan í það að setja ritgerðina upp og prenta hana út til að sjá hvernig hún kæmi út fyrir prentun (gáfulegt I know)


En mér fannst nú réttast að rúlla einu sinni enn yfir ritgerðina áður en við skiluðum henni...........


Ahh best að rúlla einu sinn enn yfir hana til að vera alveg save.

p.s.

NEVER MIND, ég fann hann

(ekki hafði ég úr meiru að moða)

Kláraðir þú að lesa þessa færslu til enda?
Einar Matthías
Til hamingju með Guggu og Stjána litla a.k.a Einar 2 :)
29. nóvember 2006 klukkan 14:37
ég las ekki aaaalveg allt, en ég skoðaði allavega þær myndir sem að sáust :)

En ég sprakk úr hlátri með að renna yfir ritgerðina hahahha... virkar þetta?
29. nóvember 2006 klukkan 15:36
Birgir
 
Ég las allt eins og alltaf! Enda í stórskemmtilegum tíma!!
29. nóvember 2006 klukkan 16:53
þetta er ekki ég með bringuhárinn, þetta er Gauti
29. nóvember 2006 klukkan 19:40
so I guess U don´t have any hair?

en hitt á við........ ekki svona skoru myndir
29. nóvember 2006 klukkan 20:07
Í tilefni af því að ég er í próflestri þá las ég hvern staf, hugsanelga tvisvar sumt af þessu....
29. nóvember 2006 klukkan 20:13
ég er mikið loðnari en þetta. Ég var svona loðin í 7. bekk. en ég skal lofa að taka ekki svona myndir.
29. nóvember 2006 klukkan 21:03
Óli Ţór
 
Ef þú snýrð þessu drasli þarna nógu hratt þá opnast gátt til annarrar víddar, mjög töff tæki svona ef þú pælir í því ...

Eða allavega svona in theory, hef ekki náð því enn ...
29. nóvember 2006 klukkan 21:13
Kristín Hrefna
 
Las allt... enda er ég stödd á þjóðarbókhlöðunni að "gera ritgerð"... ég er að hugsa um að prenta hana út á eftir og rúlla yfir hana... einstaklega skemmtileg hugmynd!
30. nóvember 2006 klukkan 01:12
Óskar
 
Góð færsla... sérstaklega gott að þú sért að grínast í EINHVERJUM, BARA EINHVERJUM öðrum en mér með myndum.


p.s. ... ég las aðrahverja línu, kom furðuvel út.
30. nóvember 2006 klukkan 05:11
Alveg eins prentari og ég á sýnist mér!

...en ætla pottþétt að nota þessa rúlluaðferð í Hugverkaréttarprófinu á föstudaginn áður en ég skila því! :Þ

:)
30. nóvember 2006 klukkan 07:02
c",)
 
Haha, snilld. Þetta vakti sem skringilega litla lukku hérna á embættinu þegar ég ákvað að rúlla aðeins yfir eitt leyfisbréf til lögskilnaðar áður en ég henti því í póst.

But then again þá vinn ég á vaxmyndasafni. Þannig að þó enginn hafi hlegið telst það ekki með.

c",)
30. nóvember 2006 klukkan 15:11
hahahahha ....

.....ég væri til í að sjá ykkur öll rúlla yfir þetta allt saman !!! hahhaa
30. nóvember 2006 klukkan 17:17
Til hamingju með frændann! ;)

hahaha snilld með að rúlla yfir prófið!!!
30. nóvember 2006 klukkan 18:40
Ég las þetta allt og hló mikið..!!! :D
01. desember 2006 klukkan 05:01
Ég náði að lesa þetta allt....

það gæti orðið áhugavert að reyna að rúlla svona yfir verkefnin í mínum skóla..... þá þyrfti ég ekki að pressa þau öll....
01. desember 2006 klukkan 20:26

Skrifa athugasemd