Auglýsing

Babú

  • Nafn: Einar Matthías
  • Netfang: einarm@ru.is
  • Stađur: frá Selfossi

MSN og mail

einar_matti@hotmail.com
einarm@ru.is

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Teljari





Statscounter





Leit

Dagbók Babú - Selfoss b, Leikhús, Bústađur Bryndísar

18. febrúar 2007 klukkan 21:52
Síðustu tvær helgar hafa mikið til einkennst af óundiirbúnu djammi....en þó alltaf djammi að einhverju leiti......

Föstudagur 9. feb

Þar sem ég var búinn að vera fárveikur alla fokkings vikuna eftir mjög svo ótímabæra sundferð á þriðjudeginum.........þau veikindi voru hreint með afbrigðum leiðinleg líkamlega og andlega svo að ég var nokkuð staðráðin í að á flöskudeginum yrði notuð besta aðferðin til að losna við kvef...... það er óhofleg bjórdrykkja.

Til að stunda óhóflega bjórdrykkju á skömmum tíma er oft mjög gott að vera í slagtogi með gömlum has been handboltamönnum sem eru blandaðir við slatta af never been handboltamönnum. þannig að ég lét tilleiðast á hugmynd Sævars og Más að skella mér á leik hjá Selfoss B í handbolta sem voru að fara keppa við Stjörnuna í Garðabænum og skella mér svo bara austur með þeim eftir leik.


Þarna má sjá mjög umdeilanlega mann leiksins, en Mási hefur verið að sýna gríðarlegan stöðugleika í leikjum Selfoss b í vetur.

Um þennan leik er annars ekki mikið að segja þannig, ég sá það út að Selfoss b er samansafn af einhverjum mestu vælkellingum sem ég hef nokkurntíma séð og eru þeir einkar lunknir við að láta mest allt saman fara í taugarnar á sér. En gamli pizzabakarinn fór síðan á kostum eftir leikinn að impra á því að menn ættu sko bara að vera að hafa gaman af þessu ekki alltaf að tuða svona mikið (þessi gamli pizzabakari og línumaður sá auðvitað um ca. 80% af öllu tuði liðsins).
Einnig sá ég í þessum leik að ég mun líklega aldrei nokkurntíma spila handbolta (augun sko) ent.d. fékk Gummi Stumpur mjög ljótt höfðuhögg í leiknum og vankaðist all hresilega við það!!!
það rifjaði reyndar upp sælar minningar af síðasta höfuðhöggi sem Smurf fékk.....en það endaði svona

Gummi sýndi það vítaverða kæruleysi þá að láta mig skutla sér upp á slysó.....hann ákvað að harka þetta af sér núna.

En strákarnir unnu nú allavega leikinn og eftir hann var étið á Robba Þriðjudegi, Farið á Klúbbinn í smá pool og bjór


Már fékk þetta "gefins" á Klúbbnum..............en eins og fólk ætti að átta sig á þá þegir hann nú allavega á meðan hann er með þetta upp í sér.

En já eftir Klúbbinn komum við við á Goldfinger til að ná í tvo heimalinga þar (að þeirra sögn) og í kjölfarið var skundað á Selfoss.....með tveimur rokkpissum reyndar.
Ekki man ég eftir að það hafi verið neitt geggjað á Pakkhúsinu þannig en .....

......en ungur kúabjölluleikari vakti óneitanlega athygli þarna og þykir líklegt að Cambridge fái kauða til að spila með inn á plötu í sumar. (Leifur Bárða umboðsmaður okkar þekkir hann víst e-ð)
En já ég helld að það hafi fátt markvert gerst og sat ég t.d. dágóða stund og inni hjá leigubílstjórunum áður en ég lét skutla mér heim!!

En þynnkan daginn eftir var svo ekki í nokkru samræmi við drykkjuna!!!

Laugardagur 10. feb.
Þennan dag var búið að ákveð stóra leikhúsferð á viltu finna milljón, en það var í umsjá Einars Glans. Dagurinn byrjaði á því að ég lýsti því yfir að það sem eftir lifði dagsins myndi ég heita Unnur...en ég var einmitt það þunnur.


Einar Þorgeirs sá alfarið um að skipuleggja þessa ferð okkar, hann sá t.d. um að finna veitingastað sem væri hvað næst borgarleikhúsinu.......................en fékk á einhvern ótrúlegan hátt út að sá staður væri Ruby Tuesday upp á Höfða (hjá THÍ) ......Einar Glans er snillingur :-)
(ég legg til að við borðum í mosó næst....það er nær)

Við skiluðum okkur þó öll ellefu í leikhús og skemmtum okkur bara hið besta. Ég var reyndar ekki í mínu besta standi, líklega e-ð veikur sko.....þreyttur, með HAUSVERK og slappur í maganum.
Eftir leikhús fórum við til Fannars.......mínus þeir sem voru að fara spila um kvöldið (Viðarssynir þ.e.)


Hljómsveitin Cambridge hitaði upp...


Sirkilleikarinn tók sóló upphitun

<
>Í þessu partýi kom það svo fyrir í líklega fyrsta skipti að mig langaði að hverfa (út af einhverju sem ég heff skrifað hérna inn) en það var vegna þess að breska vinkona mínm (aðallega Fannars samt.............og lang mest Péturs samt) sem sló í gegn í Apefest færslunni kann víst að lesa íslensku og veit af síðunni minni!!!!! ég fékk samt ekki þennan fína óritskoðaða reiðilestur og var framin þá svo að hún var ekki neitt oft sá held ég..............en ég dauðskammast mín auðvitað og bið innilegrar afsökunnar......lofa að gera þetta pottþétt aftur.
>
En áhugi fyrir djammi var alveg við frostmark og ég nennti alls ekki niður í bæ þannig að ég vara skellti mér austur á Pakkhúsið með Sæbba, Glans og Má. En það var einhver versta ákvörðun sem ég hef tekið, peiker var virkilega boring og pólverjar undir áhrifum áfengis ættu að spá meira í NFL. ég var það hress að ég fékk ér ekki einu sinni að borða í puller, þrátt fyrir að hafa farið þanngað (Andrea og Tinna skutluðu mér) og að afgreiðluspelpan hafi verið mjög sæt :)


Ótrúlegt en satt þá kom það í ljós á Pakkhúsinu að Már er í raun og veru með hár!!!!!!!!


Ein mynd getur sagt meira en 1000 orð (ég skrifa þau samt oftast líka) og þessi sýnir ágætlega stuðið á mér!!! En arnas var ég samt nýhættur að vera svona ofur þunnur.


Já svona til að sýna afhverju ég er mun meira fyrir að gista í bænum þessa dagana heldur en heima hjá gömlu, þó að ég sé að vinna á Selfossi um þessar mundir er þessi mynd af svefnaðstöðu minna "heima" ágæt.

Svona var þessi helgi í stórum dráttum og eftir hana var ég frekar mikið kominn á það að vera bara edrú næstu helgi, rólegur heima og slappa bara af eða einhvað.

Föstudagur. 16.feb
Já ég var með þau háleitu markmið að vera bara pollrólegur þessa helgi, var sauðslakur á Pub Quiz og keyrði heim strax og það var búið. Á föstudaginn fór ég síðan strax í bæinn þegar ég var búinn að vinna og ætlaði að vera rólegur heima....hæsta lagi heyra í Fannza.

Af einhverjum óskiljanlegum ástæðum áttaði ég mig á því að það er sólbaðstofa í sömu götu og ég bý, og í tilefni af því fannst mér alveg tilvalið að skella mér í ljós í fyrsta skipti í svona 4 ár.

ég hefði betur sleppt því


það er hreint magnað hvað það er hægt að brenna hressilega á einum tíma.....


En þetta hefur gert það að verkum að ALLAR hreyfingar mínar hafa verið sársaukafullar þessa helgi og ég er sjálflýsandi innrautt ljós í myrkri.

Eftir ljós fór ég á súran MSN fund þar sem ág afrekaði að byrja á föstu og hætta á föstu í sama spjallinu (hún hélt fram hjá mér)....En Már náði í sama spjalli (hópspjall sko) líka að byrja á föstu og held ég að hann sé ennþá með því kjötstykki. Einnig fann ég út að Fannar var upptekinn og að ég hefði ekki hugmynd hvað maður gerir edrú á flösludegi þannig að ég lét sannfærast um að skella mér aftur austur og fara upp í bústað með Partýhópnum tveir sköllóttir og annar í litun. (sjá auglýsingu neðar í færslunni)
Þannig að um klukkan 23:00 mætti ég í Starmóann (heim) með mitt hafurtask.....


Már af öllum mönnum keyrði uppeftir, en það hefur ALDREI áður í sögunni gerst. Már var btw. að fá sér nýjan bíl sem oft er kenndur við rassgat.

En í þessu bústaðarpartýi voru heilir þrír (þrjár), en við létum það ekki aftra okkur í því að hafa gamana af....þvert á móti reyndar.....tókum trivial.....


Vorum fyndnir


Skelltum okkur í pottinn

Reyndar tókum við einmitt trivial, og strax í kjölfarið drykkjuspil dauðans með góðri hjálp frá Dooley´s. Það spil gekk út á að drekka eða fækka fötum....eða bæði. Ég tók gott run þar sem ég þurfti alltaf að drekka...............síðan skrapp ég aðeins frá (Björgunarsveitin Babú þurfti að redda prinsessu í neyð;) og þegar ég kom aftur (ca. 10-15 mín) var Már búinn að vinna leikinn....................en hans hugmynd af sigri var auðvitað sú að hann var kominn úr öllum fötunum.

Í kjölfarið á því skelltum við okkur í pottinn sem var án gríns 32 gráður sem er rétt rúmlega allt of lítið! Már varð e-ð slappur eftir drykkjuleikinn og skilaði vikubirgðum af fæðu svíns í klósettið. Ég gafst síðan fyrstur upp á þessu og fór í sturtu......og þið hefðuð átt að heyra öskrin þegar ég fattaði að heitt vatn og brunnin líkami er ekki góð blanda.

Einhverjum tíma seinna virðist ég hafa farið að sofa, það gerði ég með það eitt að markmiði að sofa ekki í sama herbergi og Már 747. Sem ég fékk svo hressilega í bakið aftur þar sem Bryndís hrítur eins og svín líka og er jafnvel verri en Már og þær vinkonur eru ekkert mikið fyrir að deila sænginni (ég sko hoppaði upp í á milli.......og sofnaði áður en ég svo mikið sem náði að stinga upp á threesome!!!). Már svaf einn í fjórum kojum og smáfólkið gufaði upp.


Já ég gleymdi að segja frá því en áður en við komum í bústaðinn höfðu stelpurnar beðið okkur um að koma með músagildru, því það væri mús inni í bústaðnum. Ég er náttulega ekki lítið hræddur við þann fiðurfénað og var mikið á því að fara bara aftur heim að sofa. En kvikindið (Gulli) beit á agnið um morguninn daginn eftir og ég gat farið að labba á gólfinu aftur. (var orðið vandræðalegt að labba alltaf á stólunum og borðinu)


Ég hata mýs

Laugardagur 17. feb.


Við fórum í Starmóann og tókum út almenna þynnku þar yfir sjónvarpsglápi og Buzz spilun. Leifur kenndi okkur grunngrip á gítar og bassa.

Strákarnir fóru síðan heim til sín í mat um kvöldið á meðan ég lá í rúminu mínu (sófanum í starmóanum) og svaf eins og(Unnar) steinn. Síðan gláptum við á Eurovision og ákváðum í hléi að skella okkur aftur uppeftir í bústaðinn.

Partýið byrjaði afar rólega hjá okkur, spiluðum t.d. hið ofur leiðinlega Partý og Co spil sem tók forever


Hugmynd Leifs af Danmörku. (við náðum því ekki rétt)

Eftir þetta partý og co heimtuðum við re match í trivial, en ég, Már og Leifur höfum aldrei spilað saman í því áður ; ) (minnti á hraðaspuringar í gettu betur)


Eftir rólega byrjun rættist heldur betur úr partýinu, Leifur reif upp Morris (sem var upphaf fimm tíma söngs hjá mér) og Sigrún jens fékk aftur snert af MBS (sjá flestar færslur sem Sigrún Jens er í :)


MBS yfirvofandi.....(már er meira að segja farið að finna fyrir ógnun.....er e-ð að vatninu í Urðartjörninni?) ATH þetta er smá einkahúmor og áframhald á skotum sem byrjuðu í morgun


Út frá þessari mynd er hægt að búa til púsl sem endar á "Takk fyrir kvöldið" ATH þetta dulda skot ere það fyndnasta í þessari færslu

þarna var ég of fljótur á mér.....brandari helgarinnar kom frá Einari Glans á því korteri sem hann var þarna uppfrá...........................en um það hversu illa brunninn ég væri sagði kauði "hvað er að sjá þig maður, þú er bara rústir EINAR" (þegar hann loksins hittir þá slær Helgi Bárða honum ekki einu sinni við)


Linda uppáhalds vinkona mín kom við og af því tilefni bjó ég til nýjan svip!!! (minnir fáránlega á Unnar Stein á þriðja bjór (haugdrukkinn)

Þegar menn voru hættir að geta spilað á Morris, svona um fimm leytið, ætlaði ég að skella mér í pottinn, hann var hinsvegar aftur orðinn 32 gráður þannig að ég hætti snarlega við. Settist aftur í sófann, við hliðina á Ingu Birnu að ég held.

Jú jú ég og Inga Birna í flenni

Einhver hefur sett róandi í glösin okkar því við sváfum víst á sitthvorri hliðinni á sófanum (á ekki mynd af því) en ég setti einmitt met í að sofa asnalega. Svo þegar ég vaknaði um 10 leytið (við það að Bryndís kom fram og helti heilu hvítvínsglasi yfir Boris greyið, sem hafði gert allt of lítið af sér) tjáði Inga greyið (sem nú var í hinum sófanum) mér að ég hefði misst af heljarinnar orgíu, nektarpotti, almennu MBS og hvaðeina............ sem átt hefði sér stað óþæilega nálægt mér.....og bara út um allt hús!!!!

Þetta gerði þynnkuna mikið mun meira skemmtilegri en þar fórum við Már og Sigríður á kostum í föstum skotum á gerendur.......(ath ekki spyrja mig hverjir voru með hverjum samt, ég veit ekki neitt, ég V AR SOFANDI. Inga Birna var það samt ekki og var bara hreint ekki kát með þessi læti)

Már aðgætir hvernig smáfólkið hefur það......


Afhverju nást hrotur ekki á ljósmynd


Hvernig er það, takið þið eftir því að Már er oftar fatalaus en í fötum? (við gerum það ekki allavega) MBS

En ég endaði síðan góða edrú helgi á því að skella mér í Starmóann til að taka út almenna þynnku............

Hver man ekki eftir "Best nap ever" hjá þeim Joey og Ross!!!!! (annars var ég þarna að endanlega bæta metið mitt í að sofa asnalega og einnig vil ég taka það fram að Leifur og Glans voru áður í þeim sætum sem eru auð á myndinni (þ.e. ef Jakob fer að gera sér einhverjar vonir)


Dead sexy

That´s all folks

Myndir eru hér

Bryndísar hlið á helginni


p.s. ég plögga seinna fyrir partýfélagið Tveir sköllóttir og annar í litun




Einar Matthías
Takk Einar minn fyrir komuna!! Þetta var snilldarhelgi... Og shit!! Hef aldrei séð jafn heita mynd af mér áður sofandi!! Á fólk ekki alltaf að vera voða krúttlegt þegar það er sofandi?? Þetta er allavega e-ð allt annað en það!! Bendi á myndir á minni síðu! Þar er t.d. þessi fína mynd af þér og Ingu Birnu sofandi í þægilega 2ja manna leðursófanum... (Það voru sko kojur þarna og líka dýnur;)
19. febrúar 2007 klukkan 00:22
Andrea ;)
 
Fyrirgefðu Einar...:S Ég elska þig samt ennþá ;)

Hefðir samt alveg mátt minnast mín síðan síðustu helgi þar sem þú fórst 2 á rúntinn með mér og ég skutlaði þér heim á laugardagskvöldinu!!! jájá en okei slepptu þvú bara ;)
19. febrúar 2007 klukkan 00:35
Prinsessa í neyđ
 
híhíhí ... takk fyrir að bjarga mér elskan :) ..
ég átti það kannski bara skilið!!!
en ég er ekki lengur í neyð...

man að hringja alltaf í þessa björgunarsveit sem þú hefur á snærunum!! vonum samt að þetta súra ástand endurtaki sig ekki aftur á þessari öld!!
19. febrúar 2007 klukkan 00:47
En og aftur þykir mér hallað á mig í færslunni. Ástæða þess að ég var þarna á stuttbuxunum er sú að ég var nývaknaður og fötin mín í þurrk. Þumalína kældi pottinn með því að skvetta hálfum pottinum yfir mig. og ég sem ætlaði ekki einu sinni í pottinn á laugardaginn og við Leifur vorum í pottinum svo það er eðlilegt að við séum ekki mikið klæddir.
Sigrún er mikið verri en ég og ég gerði enga skandala þessa helgi, svaf meira að segja eins og steinn meðan uppbyggingin að "takk fyrir kvöldið" átti sér stað í kojunni fyrir ofan mig.
19. febrúar 2007 klukkan 12:21
Bryndís - hahaha já þetta var bara asskoti gaman, ekta bústaðarpartý, pottur, gítar og bjór. og varðandi svefnplássið þá var ótrúlega góð nýting á svefnplássinu þarna :-)

Andrea - sorry, það skip hefur silgt!!! Getum samt alveg verið vinir......en ef þú ert alveg miður þín þá get ég reynt að hook-a þig upp með vini mínum :)

Yðar hátign - hehe any time elskan, ég varð að redda þessu svona vegna tengsla þinna við lögregluyfirvöld (gat ekki keyrt sjálfur :)

Már - vá hefur lauga þá oft helt yfir þig maður :-)
19. febrúar 2007 klukkan 23:02
Ţórlaug AKA Ţumalína
 
HAHAHAHA..... Any time Már minn......
Takk annars fyrir skemmtilega helgi! Þið voruð meira að segja sannar hetjur! (Nei ekki þú Einar... og ég vísa í myndina af þér við lokaða hurð;)
20. febrúar 2007 klukkan 00:43
Takk Takk!! Það er efst í huga mér. :)
20. febrúar 2007 klukkan 09:50
Sigrún Jens
 
Þessar MBS sögur af mér eru stórlega ýktar og ég er langt frá því að vera verri en Már. Ef þetta er vatnið í Urðartjörninni þá verður gaman að fylgjast með Ingu Birnu og kallinum hennar næstu mánuði því þau eru að flytja í götuna:)
21. febrúar 2007 klukkan 00:03
Jónína
 
haha Þumalína þú varst voða dugleg að skvetta í allar áttir og maður (aðallega samt Már) átti ekki fótum sínum fjör að launa! Hlakka til að fylgjast með nýjustu Urðatjarnarbúunum takast á við vatnið ;)
21. febrúar 2007 klukkan 00:39
Ég er með miklu betri titil á "Order in Party" þjónustuna okkar.

The Burned, the Bald and the Midget.

Hljómar miklu betur finnst mér. Hlakka til að sjá auglýsinguna.

Annars neita ég öllum ásökunum sem settar hafa verið fram um mig, ég var ekki þarna á laugardagskvöldinu heldur Páll, Íslandsmeistari í tveggja manna félagsvist. Við erum tvífarar sjáðu til. Vinsamlegast leiðréttu nafnabirtinguna á síðustu færslu.

Kv, The Midget.
21. febrúar 2007 klukkan 22:59
Þú ert snillingur Hr. Rústir Einar.

Takk fyrir helgina og takk ennþá meira fyrir að segja að Bryndís hrjóti... því hún er alltaf að segja að ég hrjóti! Núna hef ég eitthvað á hana.
..annað en sófa"hömp" og annað fallegt...

"Öö...Takk fyrir kvöldið!!" ;Þ
22. febrúar 2007 klukkan 20:05
hahahahaha... snilldar mynd af þér þarna inn í herbergi!!! :D
23. febrúar 2007 klukkan 11:09
En Leifur..... var hann ekki með þér í veiðikofanum???
23. febrúar 2007 klukkan 18:20

Skrifa athugasemd