Auglýsing

Babú

  • Nafn: Einar Matthías
  • Netfang: einarm@ru.is
  • Stađur: frá Selfossi

MSN og mail

einar_matti@hotmail.com
einarm@ru.is

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Teljari





Statscounter





Leit

Dagbók Babú - Klaufar, Grundó og 1.apríl

03. apríl 2007 klukkan 22:14
Að vanda var helgin fremur tíðindalítil og róleg hjá mér :-) horfði á Gettu Betur með mömmu á fös og glápti á Back to the Future heima hjá Gumma Bergs á lau...............reyndar kíkti ég aðeins út á þeim 24 tímum sem á milli þessara sjónvarpsglápa eru.....

ATH: Fylgist með Ameríkuferð Klaufana á klaufar.bloggar.is

Flöskudagur 30.mars SMELLIÐ HÉR TIL AÐ SKOÐA MYNDIR HELGARINNAR

Aldrei þessu vant þá var það föstudagurinn sem var öflugri þessa helgina, grunnurinn var lagður með því að meira að segja ég mætti á hinn mikilvæga KFC fund í hádeginu (hef skrópað undanfarið) ferskur með svala í hönd.
Klukkan fimm var komið að hinni mánaðarlegu mælingu í átakinu bumbanburt.bloggar.is (set inn færslu seinna) og þar kom í ljós greinileg merki um ólöglega lyjanotkun, grunnsamlegan léttleika og greinileg merki um of litla bjórdrykkju

Ég og þetta tæki vorum ekkert allt of sammála

Eftir vigtun var ég næstum því farinn í sund en ákvað í staðinn að fara heim og legga mig, eftir kvöldmat glápti ég á Gettu Betur (fokkings MR) með henni Múttu og sá ekki fram á mikið djamm þannig séð. Aldrei þessu vant náði Már að plata mig í Starmóann/ hóta mér lífláti ef ég drattaðist ekki í Starmóann svo að þanngað fór ég og kenndi þeim pool....


Það skipti ekki svo miklu þótt það væri geggjað að gera á skrifstofunni enda er ég mjög öflugur með einari í pool Svalur

En þar sem Már er orðinn rótari Kántrísveitarinnar Klaufar (þ.e.a.s. bjórberi) þá er það orðið einhvað voða must að hann mæti snemma á svæðið ....og eins þar sem Klaufarnir voru að spila þá vorum við komnir á peiker um miðnætti sem verður að teljast ákaflega óvenjulegt á minn mælikvarða.....


Þetta eru klaufaleg brjóst....ég meina þetta eru Klaufa brjóst....æ sko uuu


Það voru smá tafir á þvi að Klaufarnir færu á svið, aðallega þar sem Mummi horfði á ranga Cowboy mynd áðaur en hann fór að kaupa kúrekabuxur og einnig vegna þess að troða þurfti 12 sykurmolum í Lesson Leaf.....en hann var á því að hann væri ekki næganlega sætur

Á barnum var happy hour til hálf eitt...einhvað sem þurfti ekki að segja mér, Má og Viggó oft.....en þegar þessu happy hour dæmi lauk komu í ljós mjög mismunandi hæfilekar þeirra Más og Viggós

Már með tvö bjórglös lengi skilur hann eftir með tvö tóm glös


En glasið hjá Viggó fyllist bara um leið og hitt klárast

Þetta er ástæðan fyrir því að Viggó er alltaf svona fullur SJÁ MYND .........en það breytir því ekki...ég held að Vignir sé Guð.

Þrátt fyrir þessa uppgvötun á hæfilekum Viggós vorum við á því báðir að fara bráðum að laumast út....jaaa einn bjór í viðbót og svo let´s go!!!! (var auðvitað á endanum með þeim síðustu út) en ég hinsvegar lét Boris í hendurnar á afar öflugum myndatökumanni (konur eru líka menn) sem tók myndir eins og Már að sumrii til....þ.e. margar myndirog flestar af brjóstaskorum og þessháttar :)


Þessi tapaði 11 lotu bardaga við fataskápinn sinn...en ákvað engu að síður að skella sér á djammið


Gunnar var búinn að eyða hálftíma í að sannfæra þessa um töfra Stokkseyrar og er þarna á heimleið með´ana til að sýna henni staðinn og fara verklega yfir þessa töfra
(n.b. þá náði Gunnar ásamt Steina (hennar Lindu) og Svenna í Hljóðhúsinu (allmennur perri) að beita mig harkalegu kynferðislegu ofbeldi á rölti mínu um staðinn sem sklidi eftir sig fokkings marblett.....urrr)


Bryndís að leika Þórlaugu greyið


haha vá sæt mynd, fer mér svo vel að vera fúll á svipinn


Þar sem ég var svona fúll þá reyndi ég að fá Andreu til að brosa....en vá hún er bara fúl



Guggu langar að verða "leikkona"

......Guggu langar líklega líka að ganga frá mér :) (Þú ert númer 47 í röðinni)


Svipurinn á Svenna er náttulega bara snilld......og eins og svipurinn segir....þá át hann stelpuna


Mikið vona ég að ég stefni á einhverja fallega stelpu á bak við Steina... (það var því miður ekki rauninn og hann var með skít í eyrunum)

En já það myndaðist rokna stemming á Pakkhúsinu og fullt af fólki mætt, ég náði t.d. í góðri samvinnu við Ölmu að hella fjandi miklu magni af bjór yfir Árný greiyð og fékk fyrir það miklar skammir.....frá Ölmu sko en þetta reddaðist þar sem ég var búinn að láta Glans redda Cambridge bolum handa henni (hverjar eru líkurnar)
Enn og aftur sorry samt Árný

En já að vanda var ég með seinni skipunum út og það er vægt til orða tekið að segja að það hafi verið GRENJANDI RIGNING

Helga fékk plast til að setja yfir hárið meðan hún hlypi út í rigningunni.......líklega ekki sniðugt að láta hana fá þannig

En já sökum veðurs var alveg vonlaust að fá far strax þannig að ég afrekaði að vera með síðustu úr pullaranum og líka hjá Taxa (Linda stóð sig samt eins og hetja á taxa sko :)...en það var einmitt splendid þar sem langt road trip beið mín snemma daginn eftir í bæjarfælagið sem er við hliðina á middle of shit as nowere.....Grundafjörð.

Sem sagt allt eins og það átti að vera

Laugardagur

Babú (ekki Einar) vaknaði eiturhress eldsnemma á laugardagsmorguninn og ég fékk á tímabili í alvörinnu þá flugu í hausinn að skella mér í sund áður en ég færi vestur. Sem betur fer náði ég að leggja mig aðeins áður en út í slíkar svaðilfarir væri farið. Klukkan 11:53 hringdi Dúddi í mig (óli við töluðum um tólfÖskrandi) en hann ætlaði að fara með mér á Grundó, þar sem við ætluðum að hjálpa honum Andrési að flytja milli íbúða. Þrátt fyrir þessa óþarfa vakningu var ég sprækur sem lækur og hressist ennfrekar við að finna kortaveskið mitt í Styrk (týndi því daginn áður) og síðan lyklana mína í Pakkhúsinu (týndi þeim seinna kvöldið áður.......þannig að mér tókst sko að týna kortunum og auðkennislyklinum sama kvöldið!!!.....geri aðrir betur).
Einnig sá ég Liverpool komast í 2-0 gegn Arsenal í þessari stuttu heimsókn í Pakkhúsið og knúsaði ég Birnu Spergen Ljunberg innilega við það tilefni, híhí

......þannig að dagurinn gat ekki byrjað mikið betur (jú kannski hefði Drési hringt og sagst vera búinn að redda þessu en.....)
En þaðan var farið í bakaríið og tekið sendibílinn þar og skundað á Grundó með Dúdda við stýrið og lögbundið ísstopp í Borganesi auðvitað tekið á leiðinni....

Ég sá sjónvarpið sem ég missti í "skilnaði" okkar Drésa þegar við fluttum úr Þórufellinu og heimtaði því minn tíma fyrir framan það. Hvað með það þótt hann hafi keypt það.......Unnar getur þú ekki reddað þessu?


Það þarf auðvitað varla að taka það fram að kallinn bjó á fjórðu hæð í BLOKK....Á GRUNDAFIRÐI, en ég held að það sé í alvörunni auðvitað eina blokkin þar. Við vorum farnir að hálf skríða upp í síðustu ferðunum.....ekki Dúddi reyndar en hann er auðvitað kominn í toppform ;)


Þessi mynd sem tekinn var við lok flutninga sýnir annaðhvort hvað menn svitnuðu við þetta........eða hvað það var ÓGEÐSLEGA mikil rigning......já og rok. Kallinn ákvað að vera ekkert að minnast á að það væri spáð 21 metra á sekúndu og mikilli rigningu (smart move).

En þrátt fyrir hvað það er alltaf gaman að flytja, slæmt veður og að þetta væri á fokkings Grundafirði þá náðum við að skemmta okkur hið besta enda vanir að fíflast mikið......en við keyrðum saman einn vetur í HR....húmorinn verður oft ansi súr hjá þreyttum námsmönnum og ekki erfitt að ná þeim anda í gang aftur

Talandi um að vera súr.....þá náði Dúddi einmitt þeim merka áfanga þegar við stóðum í nýju íbúðinni hans Drésa að reka hreint út sagt rosalega við....þrisvar í röð....en það var svo vígalegt að það fyrsta sem Drésa datt í hug að hefði gerst og sagði upphátt..."Nei fjandinn, það hefur farið klóaksrör eða einhvað" (Drési hljóp svo í burtu þegar hann sá að Dúddi glotti ískyggilega)....þess má geta að lyktin var vel sjánaleg og NASA var á tímabili komið í viðbragðstöðu.................já og það er kannsi vert að geta þess líka að Dúddi hljóp líka í var frá lyktinni


Þess má geta að Grundafjörður er mikið sjálfstæðismannabæli (ekki á það bætandi) og hér má sjá höllina sem flokkurinn hefur aðstöðu í þarna fyrir vestan

Eftir flutninga skelltum við okkur á annan af veitingastöðum bæjarins, Krákuna og síðan brunuðum við allir þrír austur, en sendarinn hjá Guðnabakarí er ekki stærsti bíll í heimi farþegalega séð og því ljóst að ekki væri mikið pláss fyrir menn í átaki á heimleiðinni


Plássleysið kom ekki í veg fyrir að við vorum í rokna stuði á leiðinni heim....reyndar datt ég út einhverstaðar á leiðinni og rankaði ekki við mér fyrr en í Borganesi (en Drési tjáði mér þar að ég hefði ekki verið nægjanlega snöggur að opna gluggann þegar Dúddi fór aftur að gjósa)

Engu að síður veltum við því mikið fyrir okkur á mýrunum hvar þessi eina breiða brú væri....en það stóð við hverja einustu lækjarsprænu sem við fórum yfir "Ein breið brú"


Annars er erfitt að deila svona litlu plássi með Dúdda til lengdar en strákurinn er með afbrigðum hommafælinn :-)

...þ.e. Óli er það .....ég vara stórlega við Dúdda....vá
(fyndin saga reyndar, sem inniheldur þá tvo, árshátíð THÍ, mikið áfengi......... sem endaði á þvi að ég vaknaði við að Dúddi spurði mig helþunnan...."Einar, afhverju vaknaði ég allsber við hliðina á þér"?............
ATH alls ekki eins slæmt og það hljómar....og alls ekki hafa sturtuklefa inn af svefnherberginu;)

Þegar austur var komið var ég frekar í þreyttari kanntinum (döhhh) Már og Glans heimtuðu að ég heiðraði þá með nærveru minni sem og ég gerði á endanaum.........en Már í sínu Klaufalega starfi var mjög stressaður á því að drattast á Pakkhúsið fyrir miðnæturmjaltir og því endaði ég bara á því að skutla strákunum þanngað (Viggó pg FANNARI LÍKA, en hann er víst ennþá á lífi) og fór sjálfur heim til Gumma Bergs (sem var sofnaður (WTF)) og setti Back To The Future í (búinn með allt annað) og sofnaði vært í klukutíma eða svo yfir henni (held að ég hafi ekki náð að setja á play).
Síðan fleygði ég mér í aukaherbergið hjá Gvendi eftir að Drési hafði verið svo elskulegur að hringja í mig rétt fyrir 2:00 (mannstu einhvað hvað þú vildir Débert.....eða mannstu yfirhöfuð eftir því að hafa hringt? ;)

Sunnudagur

Þetta var náttulega geggjaður dagur maður, Kristján Patrekur hefur náða að plata foreldra sína fulla af þeirri vitleysu að hann væri orðinn nógu gamall til að fermast og nýtti 1.apríl í það. (Litla skrípið hann Kriss Piss getur ekki verið orðinn svona gamall, jii minn)

Pabbi hélt létta tölu fyrir nafna sinn við þetta tilefni.

Stjáni Patti átti annars tvo nokkuð góða punkta varðandi það að hann væri sko ekki rassgat að fermast bara vegna gjafana, því til sönnunar sagðist hann aðspurður um það hvað það þýddi að fermast að hann væri að komast í guða manna tölu (Vignir er það nokkuð?).
Seinna spurði Guðbjörg systir með videocameru í hönd þessarar sömu spurningar og svarið stóð ekki á sér "æ Guðbjörg þú hefur verið of mikð með þroskaheftum" (Guðbjörg er lærður þroskaþjálfi....e-ð sem ég efa að Kristján hafi vitað)

en alltaf jafn geggjað í fermingum!!!

Í dag á síðan Jónína systir mín og mamma Kriss Piss afmæli....fjörgömul alveg, en til hammó með ammó Jónka.

Massa góð helgi samt enda eins gott þar sem ég sé fram á að ná jafnvel rólegri næst.......2/3 af mér um helgar eru í Nashville og maður því freker einmanna á klakanum (
Ég hef samt smá trú á Fannari og Viggó í að draga mig í e-ð glens......er það ekki bara Akureyri guy´s........pant ekki borga? ;)

_________________________________________________________________________________________________
En nóg komið af rausi um sjálfan mig sem enginn hefur áhuga á..............nú er komið tími til að taka upp þráðinn á lið sem ég setti í gang fyrir nokkru en hef síðan fengið óvæntan liðsauka......liðurinn heitir gerum grín af Óskari (smellið hér til að sjá brot af fyrri verkum)

En já hann Skari www.mega-babe.com ákvað að taka okkur strákana í bumbanburt til fyrirmyndar að vissu leiti nema að hann ákvað að þyngja sig og massa sig upp

Hér er frétt sem birtist á Fréttastofu Sínus , en hún flytur fréttir fyrir fréttaþyrsta verkfræðinema af MIKILLI snilld

Stefnir á heimsmeistaramótið í Vaxtarækt!

Margir nemendur Háskóla Reykjavíkur hafa tekið eftir því hvernig Óskar Eiríksson, nemi í Hugbúnaðarverkfræði, hefur aldeilis breytt sér úr mús í mann! “Þetta byrjaði allt saman um áramótin 2005-2006, kærastan mín hafði reiknað út að ég væri með samanlagðann massa á við spörfugl og þá setti ég bara smávaxna fótinn minn niður á gólfið og fékk nóg. Ég strengdi áramótaheit sem ég gleymi aldrei, að massa mig upp!” segir Óskar stoltur frá meðan hann sýnir mér hvernig æðarnar á handleggjum hans þrýstast út eins og garðslöngur á heitum sumardegi. Síðan þá hefur margt gengið á hjá Óskari og árangurinn hefur ekki leynt sér. “Ég stefni á heimsmeistaramótið í vaxtarækt árið 2008 og það er ekkert sem getur stöðvað mig!”. Þetta eru stór orð frá stórum manni, en eitt er víst, nemendur HR bíða spenntir eftir að sjá hvaða þetta tröll mun afreka á næstunni.

Óskar vildi koma því að ef fólk styður hann í keppninni að þá endilega kreista á honum upphandlegginn næst þegar það sér hann ganga um í skólanum, og bendir fólki endilega að heimsækja síðu sína sem er tileinkuð átakinu www.mega-babe.com

Mynd af Óskari fyrir átakið

Óskari sumarið 2005 (fyrir átakið)


Kappinn í júlí 2006...... djöfull eru svona englasterar sniðugir

Febrúarhefti PlayGirl


í mars 2007



Óskar í janúar 2007

(málið er að eins og allir vita þá hafa háskólanemar í próflestri alltaf furðu mikinn tíma og er okkar maður þar enginn undantekning............... Óskar álpaðist t.d. í photoshopstríð við ljósmyndara, en Skari byrjaði það víst með því að prenta mynd af kauða (photoshopaða) í upplausn sem náði 16 A4 síðum og hengdi hana upp í lesstofunni í HR (SNILLD sem Óskar kemur með slóðinaá þegar hann les þetta) ......núna er hinn að svara fyrir sig..........og vinna þetta stríð :)

ÓSKAR TIL FORSETA........og það er fátt sem toppar súra próflestursbrandara

p.s. til að slútta þessu böggi á hann Skara sem ótrúlegt en satt er mestmegnis ekkert frá mér komið er ekki úr vegi að minnast á svarið sem ég fékk þegar ég spurði hvort það væri ekki lögbundinn frídagur á fimmtudaginn...."ha jú er ekki hvítasunnudagur þá"


En nú hlýt ég að hafa náð að drepa nokkrar heilasellur hjá þeim er nenntu að lesa alla leið, skrambi góð helgi, myndir hér. ........OVER AND OUT
Einar Matthías
Stebbi Magni
 
Þegar ég byrjaði að lesa þessa færslu var batteríið 98% en er orðið 40% núna. Það segir manni tvennt, annað hvort er þetta endalaust löng færsla eða batteríði orðið frekar lélegt í tölvunni minni. Hvort heldur þú að sé rétt Babú?
06. apríl 2007 klukkan 00:29
Ég held það sé færslan hjá Babú....

... skiptu aftur um lúkk Babú, það er erfiðara að lesa þetta.
------------

Ég setti þessa mynd og hann hefndi sín helvískur.
http://nemendur.ru.is/oskare/steinar.jpg
06. apríl 2007 klukkan 08:51

Skrifa athugasemd