Auglýsing

Babú

  • Nafn: Einar Matthías
  • Netfang: einarm@ru.is
  • Stađur: frá Selfossi

MSN og mail

einar_matti@hotmail.com
einarm@ru.is

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Teljari





Statscounter





Leit

Dagbók babú - Afmćli, óvissuferđ, bíll og kosningar, mestmegnis á pensilíni

14. maí 2007 klukkan 21:07
Síðastliðnar tvær vikur hafa verið með frekar óvenjulegu móti djammlega séð.

Föstudagur e-ð snemma í maí

Um þar síðustu helgi hætti ég á pensilín-iskammti sem átti að drepa í mér alla strep-tó-kokka og datt því ágætlega í það í afmælinu hans Péturs bróðir hans pabba.....sem varð btw. 40.ára

Daginn byrjaði ég reyndar á því að bruna austur og beint í vigtun hjá henni Heiðrúnu vegna Bumbanburt, af því er helst að frétta að ótrúlega mikil veikindi í bland við bannorð frá augnlækni hafa gert það að verkum að eina líkamsræktin mín þann mánuðin var að drekka ekkert kók, en það var hreint ótrúlega erfitt í þessum veikindum.

En vigtin var ekki að skilja þessar aðstæður, og því svosem ekkert verra að fá sér smá bjór, og það með Bubbu sis, Eyþóri Wonder og Steina Púlla (Jónka var úti)..... og saman skundðum við á Laugaland í Holtum með Drésa bakara við stýrið (það var bara tveir tímar af veseni að komast af stað sem er þó nokkuð góður millitími hjá systrum mínum)

....ég endurtek að Jónína var sko erlendis


Þessi kappi varð svonalíka hundgamall, en hann hefur unnið sér það EITT til frægðar að hafa eyðilagt æsku mína með því að rifja stöðugt um þegar ég var að leita að gle-jau-junum mínum (ÞETTA ER ERFITT ORÐ)

.......... já og reyndar líka fyrr að hafa fengið Bubbu sis til að segja jesús minn í fermingunni hennar og setja það á repeat á spólunni (og þar með eyðileggja æsku hennar líka)

....Guðbjörg sagði ÓTRÚLEGA oft Jesús minn á hágelgjunni


Annars bara nokkuð hefðbundin veisla, Bjartmar og Kristjón frændur mínir voru mættir galvaskir, þennan vinstra megin (hitt hægri óli) þekkja einhverjir úr ÍKÍ og eins fyrir að vera einn af þremur rauðhærðum mönnum á Íslandi (Gessi Gau og Geiri Sím eru hinir tveir). Hinn er helst þekkur fyrir að spila á trompet með flest öllum hljómsveitum sem komið hafa upp á svæðinu milli fjallsins Baulu og sjoppunnar Baulu!!! (gott en Unnar Steinn var ekki forsprakkinn í einni þessara sveita)


Talandi um hefðbundið, þá þurfti Helgi Pé (einnig frændi minn) endilega að rifja upp samskipti okkar í afmælinu hans pabba, sem var fyrir 107 árum. En hann var þar veislustjóri, fékk hátalara í hausinn, gat á hausinn, var hálfpartin laminn í hausinn o.m.fl.
Síðan um morguninn sér hann mig rölta á átt að honum og byrjar hefðbundið spjall "Nei sæll Einar minn" og ég svaraði með einhverri hressilegustu ælu sem ég hef afrekað (og topp 5 þynnku), kallgreyið hefur ekki ennþá jafnað sig að fullu.
Til vinstri á myndinni er svo amma í flenni gír.

Þið kannski áttið ykkur ekki á því en eftir þessar tvær helgar voru 46 myndir inná Boris sem gerir mér mun erfiðara að muna þetta og gera dagbók.

En við fórum allavega tiltölulega snemma heim, að einhverju leiti vegna þess að mágar mínir detta ekki oft í það og eins til að sleppa barnapössuninni heim......

Ekki hef ég hugmynd um það afhverju Eyþór var sofnaður í svefnsófanum á þeim stutta tíma sem það tók mig að tannbursta mig......then again þá hefur enginn sofnað eins oft í miðju samtali við mig og hann


Reyndar veit ég ekki heldur afhverju hann var þarna ennþá eftir hádegi daginn eftir né heldur hvað þessi dallur er að gera á gólfinu!!!
Veit bara það eitt að þetta er svefnsófinn "minn", stellingarnar "mínar" daginn eftir fyllerí og þynnkan "mín". En ég öfundaði hann ekkert þarna þegar systir mín var að skipa honum á fætur


(ohh ég verð svo vinsæll "heima" ;)


Laugardagur 5.mai held ég

En já áfram með smjörið, daginn eftir hafði ég ekki alveg tíma til að vera þunnur (var það nú samt) því að ég var að drífa mig í "óvissuferð" með nýjum vinnuveitendum mínum. Því þurfti ég að rífa mig upp fyrir allar aldir (11:30) ...plata Dúdda til að skutla mér á móts við rútuna sem var að koma úr bænum og fara með henni á Drumboddstaði í Rafting.

Í rútunni fann ég það líklega best hvað ég þekki óskaplega fáa í vinnunni og eins hvað ég var rosalega þunnur. Þynnkan náði síðan hámarki þegar einni konunni fannst vanta smá stemmingu í þetta og reyndi að starta fjöldasöng í rútunni.....með því að taka af skarið og syngja í rútumíkrafóninn

AAAHHHHHHHHHHH sagði ég inní mér við það tækifæri


en kellingargreyið vildi nú vel og tókst að fá alveg þrjá til að næstum því humma með sér Frystikistulagið.
Tek það líka á mig að ég hefði alveg getað bent henni á að
A - ekki starta hópsöng án gítars og áfengis
B - ekki starta hópsöng í byrjun ferðar
C - ekki syngja í míkrafón nema þú sér álíka góður söngvari og Már í Cambridge (hún var það ekki)
D - ekki syngja þegar ég ER ÞUNNUR.

en ég sagði ekkert


En það þarf ekki að segja mér tvisvar að koma í rafting, ég hef farið nokkrum sinnum og þykist nú alveg kunna þetta smá og heimtaði því að vera fremstur í bátnum þar sem mestu lætin eru (ekki margir að berjast um það reyndar).

Það voru mér því ákveðin vonbrigði að detta út úr átnum með style á innan við mínútu, á stað sem ég var ekki alveg viss um hvort það mætti detta út í á. En ég gerði það nú samt og fattaði strax að ég var MIKIÐ MUN óstöðugri í bátnum núna en áður fyrr......og að ég var ennþá alveg fjandi þunnur
Ferðin gekk síðan sinn vanagang, stríð milli báta, stökk fram af kletti (á nýjum stað reyndar) og allt það. Í stökkinu kom tvennt fyndið fyrir, einn kom upp úr ánni með lappirnar á undan og annar náði einhverri mestu magalendingu sem ég hef séð.....gleymdi síðan að synda og var rétt farinn niður ánna á baksundinu (það náðist að henda í hann línu í þriðju tilraun.
Annað stórafrek mitt var síðan að detta aftur útí, á meðan það stóð kona uppi í bátnum og var að reyna að halda jafnvægi, ég var semsagt að hossa mér til að hún dytti en tókst ekki betur til en svo að ég fór sjálfur útí......hún stóð hinsvegar allan tímann!!!!

Um þessar ófarir kenni ég reyndar að miklu leiti kulda á höndum og ALLT OF MIKIÐ af fötum, flotgallinn og þurrgallinn virkuðu sem spennitreyja af verstu gerð (btw. vá ætla ég ekki að verða það geðveikur að þurfa að fara í spennitreyju)

Eftir rafting var síðan pottur sem var heilar 33 gráður þegar hann var hvað heitastur, bjór og þó nokkur skot iljuðu þó. Í kjölfarið var síðan tekin gufa, 45 manns í þriggja manna klefa (hér um bil) og þar á eftir fínasti grillmatur og bjór eins og maður gat í sig látið............og ég get í mig látið!!!

Um kvöldið var síðan veitt ýmis verðlaun sem var búið að kjósa um í vikinni fyrir ferðina eða ákveða í ferðinni, ég van t.a.m. Pottþétt 43 fyrir verstu tilþrif dagsins í ánni og var alsæll með það.
Síðan endaði kvöldið á því að fólk varð blindfullt og byrjað var að spila á gítar þar sem ég gleymdi mér að venju og söng langt yfir getu (ÞAÐ VAR EINHVER FÁVITI MEÐ VIDEOKAMERU ;( ) En þessi gítarleikari var annars alveg í Leifs-klassa (æðsta sig í gítarspili) og kunni gjörsamlega öll lög á gítar.

en þið sjáið það kannski að Borsi var ekki með í för í þessari ferð, batterýislaus heima og því hef ég bara eina mynd sem sum-ar þessa ferð ágætlega upp

Nei ok mér fannst þetta bara svo fjandi fyndin mynd e-ð :)

ég er held ég btw sá yngsti sem vinnur í Húsasmiðjunni......bara á landinu

mínus svona 300-900 manns

Um miðnætti lét ég síðan henda mér syngjandi út við Selfoss og skrapp í Starmóann þar sem farið hafði fram fjölmennasti póker Starmóasögunnar.....og það án mín ; (

Síðan hef ég frétt af mér á Kaffi Krús og eins er ég nokkuð viss um að hafa farið á Pakkhúsið.....þó alls ekki viss...jú ég fór þanngað og ég held að ég hafi sofið í sófanum heima hjá Má og Glans eftir að hafa étið u.þ.b. engann bita af tveimur breiðlokum sem Már keypti handa mér!!!

Var samt ekkert svo fullur neitt, bara Boris-laus og það er rúm vika síðan.

Vikan eftir þetta
Það þarf svo kannski ekki að taka það fram að rafting þar sem ég var meira í sundi en siglingu, kaldasti heiti pottur landsins og full mikil útivera skiluðu sér í hressilegum strep-tó-kokkum sem ágerðust þegar leið á vikuna. Ég byrjaði þó á pensilíni fyrr heldur en síðast og var því ekki eins ógeðslega veikur, meira svona bara slappur, en mætti þó til vinnu.

Reyndar ættu SMS til Óskars og co að sýna ágætlega hressleikann í vinnunni...


Mánudagur


Þriðjudagur


Still þriðjudagur


Erfiður miðvikudagur

Á miðvikudaginn gafst ég upp
og fór til læknis sem úrskurðaði mig sem sagt með strep-tó-kokka aftur og lét mig á helmingi öflugri pillur og þar með úrskurðaði mig í 10 daga bann frá öllum keppnum á vegum Carlsberg og Tuborg...... strax í kjölfarið fór ég að skoða/kaupa mér nýjan bílskrjóð og þaðan beint í það að hjálpa Bjössa og Jóhönnu (mamma og pabbi Unnars Steins) að flytja.


Það er að segja þessi, þessi og þessi

Bjössi og Jóhanna eru ákaflega ógjafmilt fólk og tóku þau það t.d. ekki í mál að gefa nýjum kaupanda, Ragnheiði Hildarfrænku, píanóið, né líkamsræktartækið (tvo stærstu hlutina).....................smá good will hérna vá.....ég er á því að Ragga (eða var það Agga, sé massa góð á píanó)

ÉG BTW HATA PÍANÓ NÆSTUM ÞVÍ JAFN MIKIÐ OG ÉG HATA AÐ FLYTJA PÍANÓ, þetta fyrra er reyndar bein afleiðing af því seinna.


Nei fávitar, það er ekki ponit-ið með þessu tæki að lyfta sjálfu tækinu!!!!!! (n.b. sjáið hvað ég var sniðugur að taka myndir akkurat þarna!!!)

En þetta hafðist að lokum, Bjössi og Jóhanna eru annars að flyjta út fyrir á og munu búa beint á móti Votta Jehova húsinu (ætla þó að gefa sér lengri tíma til að byggja nýtt hús á lóðinni), en af þeim sökum fannst strákunum ekki annað við hæfi heldur en að ganga í söfnuðinn.....

Man ekki hvað heitir, Unnar Steinn, Haukur bróðir hans og Óli Magni þræl sáttir eftir að hafa skráð sig í söfnuðinn.
Takið sérstaklega eftir hvað Unnar Steinn er ákaflega utangátta og nördalegur á þessari mynd og hvað Óli er í jólalegum buxum!!!

En eftir þetta var ég orðin hressilega búinn á því og bara þræl veikur (FOKKINGS ORÐINN GEÐVEIKUR Á ÞVÍ, er búinn að verða svo oft veikur að meira að segja Unnar er hættur að smitast.......og hann smitaðist af fuglaflensunni við það eitt að sjá frétt um hana á mbl.is)

Fimmtudagur

Ég gisti á Selfossi þessa nótt og fór með Eyþóri (mági) í bæinn (og til baka), aðallega vegna þess að ég ætlaði að ganga frá kaupum á bílnum þegar ég kæmi til baka.
Þessi bílakaup merkja það annars að senn er á enda afar ófarsælt fimm ára sambandi míns og Golfsins míns, við höfum gegnið í gegnum súrt og súrara saman allan þennan tíma. Þetta er reyndar orðinn algjör eðalbíll núna, enda ALLT búið að bila sem hugsanlega getur kannski bilað í bíl (og því búið að laga allt sem hægt er að laga)
En eins og Búni benti mér á þá er þetta eiginlega orðið 2005 módel af Golf.
Okkar samband varð aldrei eins náið og samband mitt við bílinn sem ég átti á undan, eðaltrukkinn Svenson, og gott dæmi um það er að hann fékk eiginlega aldrei nafn (Sambó festist ekki við hann, enda leitaði Sverrir Sambó réttar síns um einkarétt á því nafni)
Þannig að ég er ekki lengur Einar Matthías sem keyrir um á svörtum golfbíl (fyndið "mismæli" lítillar stelpu ;)
. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .

Það er hinsvegar alls ekki málið með nýja bílinn minn,
sem er reyndar kvenkyns (partur af einhverju rauðsokkujafréttisógeðisbullkjaftæði).
Sá nýji heitir Auður, (Auði Guðmunds, Auði "Gríms" og fleiri auðum og ógildum líklega til mikillar gleði)
Pælingin á bakvið nafnið er afar djúp á Babú/Glans mælikvarðan, en maður skrifar um "Audi" á SMS formi
Ullandi

.....sem ætti að gefa upp tegundina af bíl hjá mér

En Auður mín er annars hörkugella sem þó fæst í skiptum fyrir bíl sem er með toppgrind , dráttarkúlu,og fimmhundruð kall í milli, sem voru einu skilyrðin sem Auður uppfyllir ekki af þeim sem ég vænti!!!
Leður(hommadimmalimm)....nei Unnar
Gluggi á þaki og
Rafmagn í rusli
voru alltsaman aukabónusar

En já, talandi um Auði, þá breytti hún akkurat engu um það hversu ógeðslega leiðinleg lögin í undankeppni Eurovision voru seinna um kvöldið, né heldur hversu ákaflega "óvænt" stigagjöfin var. Eins var ég á sterku pensilíni (sem var reyndar farið að virka) og mátti því alls ekki fá mér neitt áfengt að drekka......sem ætti að vera skylda yfir Eurovision.

Föstudagur

Eftir LANGAN vinnu föstudag, skundaði ég heim og tók til, svona til að gera daginn ennþá lengri. Síðan fór ég austur að sjá Árborg merja sigur gegn Drangi í frekar lélegum leik

Lalli hefur gefið það út að leiktíðin hans með Árborg sé búin þar sem það sprakk kálfur inní löppinni á honum................... og vegna þess að þjálfarinn fer alltaf að hlæja þegar hann íjar að því að komast í líðið. (hef lent í því líka)


Lalli sem annars er mjög mikill umhverfissinni mætti á þessum bíl á leikinn og var með lifandi vél sem gengur undir og svarar ekki nafninu Naomi.

En þessa æfingaleiks verður annars helst minnst fyrir þrennt
A - Eyþór Jóns átti innkomu ársins, skoraði laglegt mark og á þrumuskot upp í samskeytin sem var óvart varið
B - Vignir átti 27 dauðafæri áður en hann skoraði þræl gott mark
C - ég var aðeins of lengi úti í kuldanum og því er pensilínið í mesta basli með að vinna bug á þessari önd sem er í hálsinum á mér

Eftir leik fór ég svo að þrífa Auði...sko bílin, hinar vildu ekki koma og er ég hræddur um að þurfa að gera það oftar en ég þurfti með Golfinn!!!!! Dammm it


Um kvöldið var síðan tekið frumlega pakkann á það, Starmóinn og pool. Þar bar nú helst til tíðinda að það voru bara tveir að fá sér!!! Árborgararnir þóttust vera í drykkjubanni, ég var í alvörubanni, Gummi Bergs er ömurlegur drykkjumaður, en Már og Leifur stóðu fyrir sínu.

Reyndar píndi pabbi mig til að ná í mömmu sem var í "eftirpartýi" heima hjá mömmu hans Sævars Gísla, og hún var nú meira en lítið til í að lána mér fermingarmyndbandið sem við reyndum að stela fyrir ekki svo löngu,, ég þáði það auðvitað með þökkum og verður það sýnt á næsta slútti hjá Árborg, en Gísli Jóns var ekki alveg á því að láta það úr húsi.

BÖLVAÐUR


Már stakk undan Geira Sverris með þessum sólbrenda gírafa og hafði gaman af.

Síðan var það smá rúntur og heim að sofa held ég bara!!

Laugardagur:

Byrjaði á því að lappa aðeins upp á golfinn svo hægt sé að selja hann og fór síðan og kaus...rétt...... annað en meiripartur þjóðarinnar, kom meira að segja aðeins við á kosningaskrifstofu.
Þar sem mér þykir slíkt jafnan einstaklega leiðinlegt tók ég litla frænda minn og fór að bulla í honum , láta hann fljúga, hlæja og þess háttar, eða alveg þar til hann ákvað að æla á mig og sig, bölvaður.
Síðan þegar fólk var farið að líta á hann sem son minn ákvað ég nú að senda hann aftur til mömmu sinnar.......og systur minnar!!!


Þessi vildi meira að segja fá að halda aðeins á "syni" mínum sem var bara nokkuð hress með það

Kvöldið hjá mér var síðan líklega það rólegasta kosninga og eurovision kvöld sem ég bara man eftir.........

Fórum á Menam þar sem Leifur sagði okkur Vigni fullt af hlutum sem við lögðum ekki á minnið en ætlum að senda á mailið skiptirekkimáli@méreralvegsama.ekkineitt og lesa þar.


Már misskildi muninn á eigin brúðkaupi og kosningavöku hvað fatnað varðar og talaði undir rós allt kvöldið!!! Gerir meira af því núorðið heldur en ég reyndar


Að loknum mat fórum við í Starmóann og gláptum á Eurovision og hlustuðum á reynslusögur Hebba Viðars frá fylleríisför för hans, Hanna o.fl er þeir tóku þátt í þessari árshátíð samkynheigðra 2003 (þ.e.a.s. þeirra sem mæta á hverju ári sem áhorfendur)

Um tíu fóru þeir í Inghól sem ég nennti ekki fyrir mitt litla líf (þetta er eins og að vera á trúarsamkomu sagði Vignir sem fór á fyrripart kosningavöku). Því sat ég heima hjá Bergssyni næstu tvo - þrjá tímana og glápti á kosningasjónvarpið þar!!!

Ekki kvöldið til að vera edrú


Ég hefði raunar mikið frekar viljað vera heima hjá Málfríði þar sem systir hennar var með Eurovision á breiðtjaldi og hélt um leið upp á 17.ára afmælið sitt

..........................................................en mér var bara ekkert boðið í afmælið!!!!

piffffff


Kvölið endaði ég síðan á því að ná í strákana, keyra í hringi, fara í Starmóann og glápa á sjónvarið, keyra krakkana (bættust nokkrir við) í Pakkhúsið, fara í Pullarann með Leif (þriðja skiptið þetta kvöld) og síðan enn eina ferðina aftur í Starmóann, en þar áttum við Leifur rómantískan pylsyvagnsnæturverð saman.

Að því loknu fór ég heim og sofnaði inni í stofu yfir sjónvarpinu með tölvuna í fanginu í miðju MSN spjalli við Vigni Egil sem átti svipað öflugt kvöld og ég.

EKKI VERA EDRÚ ÞETTA KVÖLD.....ÞAÐ BARA MÁ EKKI


Sunnudagur:


Ég vaknaði nú frekar slappur (strep-tó-ið) og ansi þreyttur eftir enn eina sofa asnalega nóttina!!! Það sama verður ekki sagt um.......


......Þennan gaur sem vaknaði frekar hress um það leiti sem ég var nýsofnaður og keyrði um eins og Fred Flinstone.

Yfir daginn þreif é svo Golfinn hátt og lágt, vonandi í síðasta skipti... gerði það sko eftir að ég hafði.....

...kvatt guð (þó ég sjái hann ennþá fyrir mér klára dæmið í Aþenu)

Ekki veit ég rass hvað ég geri um næstu helgi,

s.s. allt eins og það á að vera.

That is all, myndir svo fáar að það tekur því varla að sýna þær ERU ÞÓ HÉR

Kv. Babú

P.S.
________________________

ATH
(stolið an Bunny Girls)

Einsog þið kannski margar vitið nú þegar þá eignaðist hún Elísa Guðrún, gömul bekkjasystir og góðvinkona margra okkar, lítinn prins þann 16. Janúar síðastliðinn og fæddist hann rúmum tveimur mánuðum fyrir tímann. (innskot Babú ´84 módel af úrvals Selfyssing fyrir þá sem ekki vita)

Hann fæddist með hjartagalla og þarf nú að fara í aðgerð til Bandaríkjanna. Einsog flestir vita er svona aðgerð mjög kostnaðarsöm og borga tryggingar aðeins lítinn hluta af henni og hefur því verið komið af stað söfnun fyrir litlu fjölskylduna. Ég ætla að setja hér að neðan inn númerið af söfnunarreikningnum og kennitöluna hennar Elísu Guðrúnar í von um að sem flestir sjái sér fært um að styrkja þau.

 

Elísa Guðrún Brynjólfsdóttir

kt: 120884-2479

banki: 0152 hb: 05 rknr: 266215

munið bara að margt smátt gerir eitt stórt og þú átt skítnóg af pening0


Einar Matthías
Djöfull líst mér vel á hana Auði þína ;D hún er flott ;)
Ég er nú aldeilis búin að fá að heyra þennan audi- auði brandara, sérstaklega þar sem pabbi og mamma þurftu endilega að eiga audi þegar ég fékk bílpróf og sverrir sigurjóns tók því uppá því að kalla mig audi (ádí) með góðum undirtektum ;) hehe
En flottur bíll, mjög svipaður þeim sem ég ætlaði einhverntíma að kaupa mér en hætti við... vegna fyrrnefnds brandara ;D
14. maí 2007 klukkan 22:39
ok, þú verður hér með kölluð Ádí :)
14. maí 2007 klukkan 23:08
Bryndís
 
Ég trúi því nú ekki Einar að þessi pottur hafi verið kaldari heldur en potturinn í sumarbústaðnum í miðjum febrúar?? Það toppar enginn þann EÐALpott;) Maður var kominn í mínus 40 gráður þarna á tímabili;)
15. maí 2007 klukkan 18:41
nei hann náði því reyndar ekki!!! það er ekki hægt að vera í kaldara vatni en það ....Hvítá þar með talin
15. maí 2007 klukkan 19:50
hæ hæ brói.. bara að láta þig vita að ég fylgist með þér.. hi,hí sjáumst fljótlega... p.s ekki tók ég eftir því að Bjarni Harðar hafi tekið drenginn minn í fangið:) sé þig
15. maí 2007 klukkan 23:01
Varð bara að kvitta fyrir mig... þú ert snillingur
16. maí 2007 klukkan 20:11
Ágústa R.
 
Djöfull er myndin af Eyþóri og vaskafatinu fyndin ... ómægod!
16. maí 2007 klukkan 23:16
Mikill aðdáandi sko, ó-endanlega fyndin blogg hjá þér!!

Kv. Sonur ofangreindar Ágústu R!
18. maí 2007 klukkan 23:22

Skrifa athugasemd