Auglýsing

Babú

  • Nafn: Einar Matthías
  • Netfang: einarm@ru.is
  • Stađur: frá Selfossi

MSN og mail

einar_matti@hotmail.com
einarm@ru.is

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Teljari





Statscounter





Leit

Dagbók Babu - (ţví) miđur maí

20. maí 2007 klukkan 22:33
Eins og flestar vinnuvikur sem ég hef unnið frá því ég byrjaði í Húsó þá var frí einn daginn í henni, þ.e. það var frí á miðvikudaginn og í stað þess að hella mig fullann, fara niður í bæ, hlæja eins og bjáni og ganga svo í það að lemja lúsablésann þann........... þá var ég bara heima og gerði ekki neitt (var nebblega ekkert búinn að massa mig upp)!!!
en þetta segir kannski meira en margt um mátt pensilíns. Hinsvegar heyrði ég í Einsa Glans sem var í 14 himni með að hafa náð sveinsprófinu sínu, snilld hjá Glansa sem ákvað held ég að gera allt þetta sem ég gerði ekki.

Föstudagur
18.maí (held ég)

Í ljós hefur komið að ég er bara þó nokkuð skipulagður fylleríislega næstu vikurnar og því var þessi helgi eiginlega sú eina sem kom til greina (í langan tíma) fyrir mig og Drésa að uppfæra hjá okkur lokaverkefnið fyrir árið 2006 fyrir fyrirtækið sem við unnum það fyrir. (unnum í ársreikningum ársins 2005 síðast)


Gamalkunnar stellingar

Það hefur kannski ekki farið frammhjá mörgum að flestir sem eru mikið að læra lengi verða afar súrir í kollinum, ég Drési og Sævar Sig höfum aldrei verið taldir útundan í þeim hópi og því var stutt í súrleikann og svefngalsa-háturkastgírinn.

Við náttulega byrjuðum á því að rúlla aftur yfir ritgerðina sem við gerðum.
(Hér er annars gamalt dæmi um hvað þessi ritgerð gekk nærri okkur andlega skaðaði okkur þroskalega)

En hvað um það, við urðum svangir og ég stakk upp á Food Taxi, e-ð sem ég hef ekki pantað hjá áður, allt í góðu með það svosem en ég sagði þó áður en við pöntuðum að þetta væri líklega ekki sniðug hugmynd því ég ætti líklega ekki eftir að halda út að hlæja ekki meðan sendillinn hjá Food Taxa myndi taka við greiðslu. Þeir eru sko í einhverju rosa múnedringu alltaf.

Allavega maturinn kom og ég fór á undan til dyra, um leið og ég opnaði sá ég að ég myndi ekki halda þetta út, gaurinn var í þessum líka massa búning, með hreint ótrúlega töff hatt frá fyrirtækinu ásamt því að hann hafði sett álver framan í sig, var í hreint fáránlegum buxum og í moonboots skóm sem mér þótti best.

Stuttu síðar mætti Drési (ég lét senda þetta á efri hæðina fyrir þá sem þekkja til heima hjá mér í bænum) og sá um leið að ég var í miklu basli með að halda í mér hlátrinum og lenti því auðvitað sjálfur í mesta basli.
Auðvitað endaði þetta á því að ég fór að hlæja og reyndi mitt besta til að bulla einhverja tóma steypu til að hann myndi ekki fatta að ég væri að hlæja beint að honum, en líklega hefur kallgreyið heyrt í okkur eftir að hann lokaði hurðinni, farið aftur í höfuðstöðvarnar og sagt upp. (I would)

Djöfull er erfitt að hlæja ekki þegar maður á að halda því í sér, úfff þessi var reyndar extra slæmt dæmi. En þetta var ágætismatur og vel úti látið. Get samt því miður ekki mælt með Food Taxa því ég sé ekki fyrir mér að nokkur maður getii haldið í sér hlátrinum við afgreiðslu.

En ekki var mikið um tjútt og tralla la og enn minna tíka tíka vá vá (smá einkahúmor;)

Laugardagur 19.maí


Ég vaknaði eldsnemma............ eftir hádegi og skellti mér á Selfoss (ætluðum að halda áfram að uppfæra verkefnið þar). Í kringum kvöldmat vorum við svo búnir að finna það út afhverju maður var orðinn svona geðveikur á þessu síðast og því lítið annað að gera en að hella bara í sig.


Eftir að hafa smalað saman góðum hópi í póker skelltum við okkur á Menam (óvenju oft þar e-ð). Þar var áréttað gamla góða reglan að BANNAÐ væri að ræða pólitík. En það er AFAR GÓÐ regla á þeim drykkjusamkomum sem innihalda Má og Drésa í sama húsi (fyrir utan alla aukaleikarana sem verða einnig afar leiðinlegir í þannig spjalli). Þessi regla er líka oftast virt að öllu leiti, eða alveg þanngað til komið er á e-ð öldurhús.

Áfengi + pólitík = slæmt/bannað (mæli með þessu)

En við fórum heim til Más og Glans í póker og það var afar gaman að sjá hryllingssvipinn á nágrönnunum þegar við gengum í húsið 6-7 saman með bjórkassa og bland


Gummi Þór, Baldvin OFL, Babú í Cambridge, Helgi ert þú Hlynur, Fannar ert þú Vignir, Andrés og næstum því síðar Drési, Sævar Gísla alveg eins og hrísla og Gummir OHHHH ANDSKOTANS Bergs mynduðu fjölmennam níumanna póker við afar óstöðugt og lítið borð heima hjá Má.....sem var auðvitað líka með (see the kall with the skall fremst á myndinni)

Þetta var svosem frekar venjulegur póker, stemmingin góð, reyndar er það spurnig hvort hún var góð því að líklega hlóum við mest af brandara frá Baldvin sem tók að sér hlutverk Einars Glans sem komst ekki, en hann sagði einfaldlega Andrés.sína/sýna, e-ð sem aldrei hefur verið fattað í póker áður sem verður að teljast ÓTRÚLEGT í þessum hóp. (KLÁRLEGA had to be there)


Gummi Þór fékk það erfiða hlutverk að vera í öðru sæti og endaði alveg í ræsinu í kjlfarið, fór bara út á stétt og byrjaði að reykja og drekka. (Gumm er allajafna áfengismaður á bindindi og tóbak)


Selfoss eina von vann þetta svo á endaum, öllum að óvörum en hann er búinn að vinna grunsamlega oft undnfarið........viljum við kenna Haldóru um enda hún ávalt frekar mikið á vappi í kringum spilaborðið þegar hann er að gera. ;)
Sævar svindlaði reyndar að því leiti að hann var bláedrú enda að fara keppa daginn eftir og hefur þessi sigur hans nú þegar verið kærður til hæstarétt Ástjarnarinnar.
(fyrir áhugasama þá er Sævar þarna að fá lánaða myndina Mean Girls hjá Máser og er það í þriðja skiptið sem hann fær þá mynd lánaða hjá Má)


Robbie Fowler mætti galvaskur og hélt upp stuðinu eftir pókerinn


Eftir póker skelltum við okkur á soon to be eina pub Selfossbæjar (kem að því HELVÍTIS ANDSKOTANS HELVÍTI hér neðar). Þar inni var Tóti Snorra og fyrir mig er gaman að geta þess að gaurinn þarna til hægri með hvíta bandið tengdi mig einhverra hluta vegna e-ð við Árborg FC en Tóta ekki rassgat ;)

...Tóti hefur oft verið hálfgert HR. Árborg.... æ nei það er eiginlega Gummi Kalli.....Frú Árborg þá..... æ nei það Jakob................æ Tóti er mikill árborgari.


Drési sprakk á liminu og tók tvöalda pólitík-röfl-fylleríis ræðu við Glans og Helga (ofl)
Ég smellti mér aðeins í þessa umræðu og fékk fyrir vikið harða ræðu um Sambandið sáluga (ég var í bol með merki Sambandsins)

Ég söng hinsvagar bara Sambandi, ég verð að ná sambandi og skundaði í burtu .....
(var reyndar sagt að drulla mér bara í burtu, takk Drési)


Stórvinur minn Llilli Gústheandal gaulaði á Kaffi Krús. Gústi heldur annar sennþá fast í þessa lífsskoðun sem stendur þarna á höndinni á honum
"Life is what happens to you while
you´re busy making other plans"

En já Kaffi Krús lokar snemma og þar sem ennþá er hægt að rölta yfir á Pakkhúsið þá gerðum við það og það stóð svo sannarlega undir nafni.....ALVEG PAKKAÐ.

(æ fokk ég var á rúntinum til þrjú með Andreu og mömmu minni (ég meina stelpa sem heitir Brynhildur) á nýja kagganum hennar Dreu áður)

Versta við Pakkhúsið var að ég gekk beint í flasið á systir minni sem var í hressari kanntinum. Allavega þá fannst henni ÓVENJU gaman að sjá mig þarna og ég held að hún hafi jafnvel verið búinn að fá sér einn til tvo bjóra því allajana líkar henni ekkert sérstaklega vel við mig ;) Sömu sögu hefur Fannar greyið að segja en henni fannst líka mjög gaman að sjá hann!!! (þori ekki að birta mynd af henni)

(smá skot á Bubbu sem var svipað hress í dag og Eyþór var í síðustu dagbók ;)

En nei nei gaman af þessu, ég allavega sagði Soffíu (vinkona Bubbu sem var þarna líka) að ég myndi drepa hana ef hún tæki ekki Bubbu með sér í pullarann......... so off they went og allt í góðu á peiker.
Það varði í svona mínútu, eða allt þar til vinkona eldri systir minnar kom að mér að leita að henni, en hún var víst helmingi hressari..........

ég yfirgaf Pakkhúsið í kjölfarið á harða hlaupum.

"Ég" (þ.e. Fannar á mínum bíl) skutlaði þó Bubbu heim eftir pullarann. Á þeim 5-10 mín sem það tók kom það semsagt enn eina ferðina fram að:
- nei ég á ekki konu.... ANDSKOTANS DJÖFULSINS HELVÍTIS OHHHH
- og Már ER FÍFL FÍFL FÍFL FÍFL FÍFLFIFL FÍFL FÍFL FÍFL FÍFL OG ASNI

Sunnudagur 20.maí

Fannar hringdi ALLT ALLT ALLT of snemma eftir hádegi og heimtaði að við færum að éta eins og við höfðum ráðlagt kvöldið áður. Þannig að ég Fannsi og Glans skelltum okkur í Þrastarlund að éta (frumlegt).

Ég pantði mér burger, en það er e-ð sem ég geri nú frekar sjaldan. Á burgerinn bað ég um egg sem mátti steikja báðu megin....................

E-ð er svipað langt síðan kokkurinn gerði eggjaborgara og ég pantaði slíkan því einhverrahluta vegna fékk hann/hún það út að best væri að setja það þarna ; )
(kannski er þetta bara ég).
En Þrastalundur verður nú að teljast með flottari hamborgara og samlokustöðum á landinu.


Yfir matnum sagði Einar okkur frá því að hann hefði nú aldeilis fengið sér flugferð við að setja upp gluggann í húsinu. En það var einmitt við byggingu nýja Þrastalundar sem Einar Glans var settur í flugbann í G-Verk eftir að hafa farið í tvær frekar stórar flugferðir.
(í hitt skiptið tókst honum að detta í gegnum opinn hlera á stillansa og stórtjóna sig)

Eftir mat var skellt sér á Selfoss Hött sem var háður í hreint ömurlegu veðri. Sá leikur var annars rosalega leiðinlegur og ALLT OF mikið af kýlingum í gangi (kick and run þ.e.) Leikurinn fór þó vel að lokum og Sævar Gísla hélt uppi uppteknum hætti frá kvöldinu áður (so to speak) og skorði bæði mörk Selfoss í 2-1 sigri

Sævar þarna í viðtali hjá Gumma Kalla...........af því er hann hélt, glöggir sjá þó að þetta er bara síminn hans Gumma og líklega verður talhólfskveðjan hans á næstunni e-ð röfl í Sævari.

Svona var helgin að mestu hjá mér, frekar róleg og líklega rólegri en næstu helgar sem eru þétt skipaðar

Önnur mál

Það er farið að gæta vaxandi óánægju hjá þessum gaur enda hefur hann nú í fyrsta skipti í átta ár ekki náð gluggasæti í bíl hjá mér. Cartman er kominn til ára sinna og því miður ekki eins mikil prýði af honum og áður....................................................Unnur ferðu ekki að fara aftur til DK? :o)

ætti kannski að reyna að selja hann með Golfinum

En eins og ég hef allt of lítið böggað óskar með þá er hann ennþá að læra á fullu og því alveg að flippa út í leiðindum, t.d. sá hann sig knúinn til að GERA ÞETTA


Be careful óskar



En annars þá er framtíð mín sem drykkjuhrúts, framtíð Selfossbæjar yfirhöfuð og andleg heilsa Selfyssinga í mikilli hættu um þessar mundir og nánast búið að leggja grunninn að svartnætti hvað þatta varðar........

.........Pakkhúsið er að loka og í bónus verður rekstur Pizza 67 lagður niður.

ANDSKOTANS DJÖFULSINS HELVÍTIS HERPESSLEIKJANDI DJÖFULSINS GREVALANS FJANDNAS FOKKINGS HELVÍTI.

Það þarf ekki að taka það mikið fram að þetta eru hreint hæðileg tíðindi fyrir Selfossbæ og það sem mikilvægara er......fyrir mig.......... enda hefur Pakkhúsið alltaf verið minn pub, var of ungur þegar gullöld Gjánnar varði, hataði HM Café, fann mig ekki i Inghól, ekki mikið á Kaffi barnum o.s.frv. ég vildi og hef alltaf bara viljað fara á Pakkhúsið mitt (líka þegar ég hef búið í bænum)

Svo var ég alinn upp á Pizza 67 þannig að með þessu er semsagt veröldin að hrynja,......og hvar í andskotanum á maður núna að horfa á fótbolta? og hvað ætliði að gera við Gumma Bergs?
Ef ég ætti að reyna einhverjar myndlíkingar þá finnst mér álíka slæmt að Pakkhúsinu sé lokað bara sí svona og Erlingi Brynjólfs fannst að Gjánni lokaði og Norm leið þegar Cheers hætti.


Golden moments úr pakkhúsinu

Cambridge varð til þarna............Cambridge varð sko til akkurat þarna!!!!

Þessi mynd tengist Pakkhúsinu hreint ekki neitt en mér fannst hún bara svo fyndinn þegar ég var að leita að Pakkhúsmyndum

Já og hvað með Pub Quiz? :( það er líffræðilega ómögulegt að hafa það á Kaffi Krús.............Hella? CRAP

En já þetta Pakkhús að loka og að tala um það gerir mann bara leiðann og í ljósi þess að það er að koma sumar er vert að hafa mottóið hans Más í huga og segja bara......



That is all



Babu has spoken, megið gera það líka á hægri kanntinum

Framundan: Liverpool - AC Milan og akkurat ekkert annað

COMEONYOUREDS
Einar Matthías
Þú ert alltaf jafn fyndinn Einar!! Þarf greinilega að kíkja oftar hingað, alltaf eitthvað slúður af fjölskyldunni!! Guðbjörg systir þín er náttúrulega snillingur og það var virkilega gaman að sjá hana rifja upp gamla takta sem ofurdjammari (greinilegt að þetta er ættgengt). Vertu bara feginn að hún sýndi þér ekki hvað hún var með í töskunni framan á sér ;)
21. maí 2007 klukkan 22:49
Ágústa R.
 
Sko Einar, við stofnum bara nýjan Peiker! Ég verð eigandi og bardama (Kata Helga hvað?) og þú verður eigandi og bókari! Ég nebblega sýg í bókhaldi og þú minn kæri, yrðir ööööömurlegur barþjónn (Sam Malone var alltaf edrú manstu, þú ert það soldið ekki) ... kasegiru? Eriddiggi málið? Now, verst með hentugt húsnæði ... hmmmmm, I'm thinking ... gamla GÁB! Við gætum verið með öl-fittings-hornið og vodkapípulagnadeild pg plentí of fútbal (var ekki Bárður alltaf í boltanum?). Ætli Ingvar vilji selja? Mogginn er allavega kominn ...
21. maí 2007 klukkan 22:54
Ţórir
 
Ég trúi því ekki að það á að fara að loka... hvert á maður þá að fara að djamma þegar maður kemur heim í sumar?? Spurning um að fá vín- og skemtanaleyfi í starmóanum hjá Má og Glans!!!
22. maí 2007 klukkan 11:51
Þetta er náttúrulega fyrir neðan allar hellur (líka Hellu)... ég legg til að opna bara hvíta húsið!! Andskoti nógu stórt og ef það er of stórt þá má bara hólfa það niður! Þú ferð að vinna íessu Einar...
22. maí 2007 klukkan 21:59
Á meðan við hugsum okkur nýjan stað verðum við bara að nota hýbíli Glanz og Más... Kaffi Krús er náttl. til staðar áfram!

...en þessi mynd þarna... held að þeir tveir hafi endað á Pakkhúsinu seinna um kvöldið, eða svo segir sagann! Svo það er einhver tenging! :Þ
23. maí 2007 klukkan 01:29
Langar bara að benda þýska njósnaranum á að hvorki Már né Glans búa í Starmóanum. Þeir eru vissulega tíðir gestir og því kannski ekki fráleitur misskilningur.

En Þórir minn, ÉG og Hebbi erum að leigja í Starmóanum (a.k.a. félagsmiðstöðinni) og Már og Glans leigja í Ástjörninni (a.k.a. ekki félagsmiðstöðinni).

En ekki skrítið að þjóðverjar viti ekki af þessu, bara búið að vera opið í nokkra mánuði. :-)
23. maí 2007 klukkan 08:56
Ţórir
 
Ok gott að fá það á hreint Leifur minn... Þar sem ég hef verið mikið í njósnum í austur-Evrópu hef ég ekki getað náð að fylgjast með ;o)
Þá mæti ég bara í félagsmiðstöðina þegar ég kem á klakann.
24. maí 2007 klukkan 07:15
Halldóra
 
héðan í frá kem ég alltaf með Sævari í poker svo hann vinni alveg örugglega :) nema hvað.... ég verð bráðum með er það ekki ???
25. maí 2007 klukkan 11:25

Skrifa athugasemd