Auglýsing

Babú

  • Nafn: Einar Matthías
  • Netfang: einarm@ru.is
  • Stađur: frá Selfossi

MSN og mail

einar_matti@hotmail.com
einarm@ru.is

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Teljari





Statscounter





Leit

Dagbók Babú - slútt hjá Árborg vs driver

02. september 2007 klukkan 17:07
Síðustu tvær vikur held ég að teljist bara frekar rólegar á minn mælikvarða. Um síðustu helgi var slúttið hjá Árborg sem allajafna telst mjög svo hressilegur viðburður, í ár var engin undantekning.

Á fimmtudeginum fór fram stórleikurinn milli eldri og yngri sem eldri unnu klárlega að meðaltali (það er miðað við að seinni hálfleikur var u.þ.b. þrisvar sinnum lengri......og við unnum hann;)

En slúttið byrjaði á því að ég var með "smá" myndasýningu frá liðnu ári, þ.e.a.s. ég fékk myndir frá mér, Jakobi og Vigni og sigtaði úr þeim 7-800 myndir frá þeim viðburðum sem inniheldur árborgara lyfta sér upp og síðan 2-300 myndir frá Gumma Kalla sem sýndi þá spila fótbolta;) (Boris dreif aldrei langt inn á völlinn).
Við gerð þessarar möppu bar það helst að ég þurfti að sigta út ÓTRÚLEGA margar myndir frá Kobba sem voru af honum sjálfum, en þrátt fyrir það var fólk farið að hlæja af því hvað hann var á mörgum myndum ;)
(hann var sko ekki á slúttinu)

En þrátt fyrir allar myndirnar af honum Kobba og allar hinar þá vakti þessi......

.....mynd einhverra hluta vegna langmesta.....athygli skulum við orða það :)

skilja það sem skilja en þetta er frekar fyndin mynd í dag


Það er hefð fyrir því að matargerð á slútti er í höndum snillingsins Óla Ólsen (fjarskyldur ská frændi frænku Ólsen Ólsen).
Þarna má sjá hin vel upp alda fyrirliða Árborgar Guðmund Ármann reyna að fara með borðbæn......en þar sem Teddi er svo ótrúlega lengi að borða var alveg í lagi að hann byrjaði bara strax að éta.


Tveir af hressari mönnum kvöldsins....jú einmitt í flenni. Davíð Svanur var annars kosinn stuðningsmaður ársins hjá Hnohna og var hreint ÓTRÚLEGA ánægður með það :)


Í verðlaunaafhendingu kvöldsins fór ekkert á milli mála að Örvar Rafn Hlíðdal var maður ársins hjá Árborg og vann önnurhver verðlaun kvöldsins og fékk ósjaldan lagið sittt sungið fyrir sig (Luis Garcia lagið)

Já það má kannski geta þess fyrir þá sem ekki vita að eftir þó nokkra uppstokkun á stjórn í sumar og hrókeringar...og hrókasamræður, svo ég tala nú ekki um unglingastarf Hróksins þá er Addi Braga í dag formaður Árborgar og Baldvin er varaformaður og afhentu því lögum samkvæmt verðlaunin fyrir hönd stjórnar.


Eins og ég sagði þá er Baldvin varaformaður og sér um að veita mönnum verðlaun...........því eru svona hlutir alveg óhjákvæmilegir og að öllu óbreyttu verða vinningarnir á næsta ári úr plasti :o)


Eftir að stjórn var búinn að ljúka sér af þá tókum við þreminningarnir við óformlegri verðlaunaafhndingu.............

til dæmis


Var Einar Glans óumdeilanlega kosinn versti stuðningnsmaður Hnohna, en hann sagði mjög eftirminnilega, mjög innilega og alveg ótrúlega hátt á bikarúrslitaleik FC Flóa og FC Hnohna
"KOMA SVO FLÓI.....neeeeeiiiiii"

.......en ætlaði alveg rosalega að segja Hnohni, sem uppskar mikinn hlátur í báðum herbúðum.


Einar tvíburi fékk viðurkenningu fyrir að vera grófasti leikmaður tímabilsins fyrir að gera þetta við Fannar, en þetta er í fyrsta skipti á ferlinum sem Rúnar á Langstöðum hlítur ekki þennan titil


Því næst sá Gummi Kalli (sætur?) um árlega spuringakeppni milli eldri og yngri


Þetta lið frá eldr ætti að híða opinberlega fyrir ömurlega frammistöðu, t.d. vissi Teddi ekki neitt í spurningum um hann sjálfan ; (

Næst gerðist nokkuð ótrúlegt, fyrir þá sem hafa lesið þetta bull HÉRNA þá gerðist nefninlega sá ótrúlegi atburður að það kom upp gríðalegt ósætti mili Óskars og Jóhanns, ímyndaða vinar hans sem endaði með því að Jóhann hreinlega...

...kýldi Óskar og ég náði akkurat mynd af því ;)


Á sama tíma reyndi Svarur að heilla kvennþjóðina með verðlaununum sínum, en þá má teljast hreint ótúlegt að Már hafi ekki hent honum öfugum út eins og hann gerði við pólverjan Sigurð Helgason seinna um kvöldið ;)


Hápunklturinn á hverju slútti er síðan ávallt uppboðið á búningum tímabilsins á undan. Umsjón með þessu hefur ávallt Adólf Bragason með Gumma Kalla (gjaldkera) sem sitt side kick og það er alveg óhætt að fullyrða að það er ekki hægt að finna betri menn í þetta og maður verður alltaf hissa á því hvað menn eru tilbúnir að kaupa þessa búninga á, en þetta er stór fjáröflun hjá félaginu.


Fyrirliðin fékk tíuna sína, en GÁB, sem var að gifta sig í gær (TIL HAMINGJU MEÐ ÞAÐ GUMMA OG TOBBI) er að flytja út til Seattle þar sem hann ætlar í masterinn og verður því ekki með Árborg á næsta ári


Og Sjöan fékk sína ástkæru 7-u eftir harða baráttu við Tedda sem allajafna spilar í númer 7

þeir voru báðir að drekka 7-up

Eftir mjög gott búingauppoð reyndi ég mitt besta til að hafa söngkeppni milli eldri og yngri, fyrirfram ákveðið skipulag fór samt að mestu allt í vaskinn sökum seintleika og ölvunar keppenda en eldri höfðu engu að síður afgerandi sigur með frábæru framlagi frá

Óskar með Mr. Big


Gummi og Tobba með Riddara götunar

og


að lokum tók Gummi Kalli stórsmellinn Veiðistöng og tryggði eldri öruggan sigur BRING BACK OFL

Þar með var ballið byrjað og það er alveg óhætt að segja það að til að halda uppi stuði á Árborgarslútti er nóg að finna einhverja sem kunna á hljóðfæri (og það er til slatti af þannig) og hafa síðan bara nóg af míkrafónum, enda vilja 90% gesta spreyta sig á einn eða annan hátt :)


Þessir þrír ásamt Hebba Viðars og Árna hinum grimma héldu þessu þó réttu megin við falskleikann og fagmennskuna


Hvernig er það, ertu ekki að austan?

Opal grínið er ekki ennþá orðið þreytt


Næsta sett af spilurum Hebbi, Árni og það á trommum og Addi með gríðarlega takta


Að lokum komst Már í tæri mið míkarfóninn og lét hann því miður ekki af hendi fyrr en káfað var á Jónínu :=)
(gaurinn sem það gerði þurfti að nota megið af flugpunktunum sínum í flugferðinni sem hann fékk út úr húsinu ;)



Maður ársins hrökk í flennigírinn

En þegar fólk fór að streyma frá eina skemmtistað bæjarins ákvaðum við Gvendur Karl að flauta ballið af við litla hrifningu gesta (
aha ég var því miður nógu rólegur til að vera í ástandi til þess)

(ég var með myndavél á láni þetta kvöld)

Laugardagur

Daginn eftir lá fyrir að fara á mjög mikilvægan leik hjá Selfoss, en sá leikur endaði með mjög svo pirrandi jafntefli. Um kvöldið var síðan stefnan að fara í innflutningspartý hjá Halldóru og Sævari. Að leik loknum fór ég til Hebba í smá bjór, þanngað kom Gauti innan skamms sem margborgaði sig því að við lentum í alveg massa góðum mat heima hjá Sigga Kalla og Ingunni.

Ingunn hafði "óvart" eldað of mikið hreindýrakjöt og vantaði einhverja til að klára það ......EKKERT MÁL ;)

Eftir þá veislu (ca. 2 tíma) fórum við til Sævars og Halldóru. Fín íbúð sem þau voru að fá sér og ég myndi sýna ykur myndir úr henni væri Boris á lífi ;/

En til að gera langa sögu lengri þá fór megnið af þessu partýi á ball á stað sem ég hef ekki djammað á HELVÍTI lengi, Úthlíð, einn af mínum uppáhalds ballstöðum eftir að hafa margoft drepist þar fyrir utan að loknu fjörugu Papa balli ;)
Bjórbandið var þar að spila og auðvitað fín stemming í húsinu. Ég hélt reyndar að ég hefði verið tiltölulega rólegur þetta kvöld (enda ekki með myndir til að hjálpa mér við að muna neitt) en eftir smá hugs mundi ég að ég var kominn upp á svið með Sævari Gísla þar sem við sungum allavega Hesta Jóa með Bjórbandinu!!!!!! FOKK.

Eftir ball fór ég með rútu heim þar sem við héldum uppi hörkustemmingu með Árna Sigfús á gítarnum hans Hebba (er hann ekki kominn með neitt nafn?) og megninu af Selfossliðinu.(fengu leyfi til að lyfta sér upp sko, þetta Selfoss lið er ekki líkt Selfossliðum undanfarina ára)

Að loknum pullara og þess háttar endaði ég á því að sofa í Bjarka-herbergi heima hjá Sævari og vaknaði vitlausumegin við tólf daginn eftir og laumaði mér út.

En þessi helgi og söngtilburðir okkar allra í Cambridge (Óskar, Fannar og Glansi sungu allir á slúttinu líka) hefur hjálpað ennþá frekar til við að koma Cambridge á kortið og erum við núna komnir á skrá hjá nýrri og þræl öflugri umboðsskrifstofu sem Bessi Hressi var að stofna. www.sonus.is/listamenn (mæli eindregið með að þið smellið þarna og finnið út hvað stingur í stúf;)

Mánudagur
Þar sem það er kominn vetur (jú víst) þá er um að gera að reyna að endurvekja gamlar hefðir og því erum við Fannar farnir að endurvekja KKK aftur. KKK er ekki lengur The Ku Klux Klan heldur Kokka Klúbburinn Kobbi þar sem við (ásamt Drésa þegar hann er á Íslandi en ekki Grundafirði) eldum okkur einhvað að éta og tökum jafnvel video eða einhvað (oftast á mánudögum þegar helgin situr ennþá í manni;).

Ástæðan fyrir því að ég er að segja frá þessu er sú að ég toppaði árangur minn í því að taka hreint út samt ÖMURLEGAR videomyndir, jesús minn, hæfileiki minn til að velja spólur hefur versnað gífurlega.

Allavega þá mæli ég með að þið skoðið betur um hvað þessi mynd er áður en þið takið hana (sá bara að Ryan Reynolds var í henni og hélt að það hlyti að vera temmilega léttgeggjað).
Ég man hinsvegar ekki hver hin myndin var sem ég tók en hún var ekkert skárri og það er búið að reka mig úr videomyndatökunni.


Á fimmtudaginn reyndi Steini Púlla (mágur minn) svo að drepa mig (önnur tilraun). En það þarf líklega ekki að taka það fram að mér finnst ekkert gaman að fara til tannlæknis (ekki í vinnuna til hans allavega) og ég var með dofin kjaft mest allann fimmtudaginn.

En það að ég sé farinn að tala um ferðir mínar til tannlækins segir kannski meira en margt um hvað helgin sem var að líða var öflug hjá mér!!!

Á föstudaginn fór ég ásamt ótrúlega mörgum Selfyssingum að sjá Selfoss vinna Aftureldingu og með því stíga skrefi nær því að komast LOKSINS LOKSINS upp um deild, snilldar sigur alveg. Sævar Gísla var með tvö mörk (17 á tímabilinu) og seinna markið var eitt af mörkum ársins eftir frábærlega útfærða aukaspyrnu hjá Nirði og Ingó (og Sævari). Svona sænskur keimur af henni

Um kvöldið fór ég síðan bara austur og var á rúntinum á Selfossi. Það væri kannski ekki frásögu færandi nema fyrir þær sakir að þessi staðalímynd sem við (Selfyssingar) höfum út um allt land virðist aftur vera farinn að eiga við rök að styðjast, það voru Camaro-ar spólandi í hringi í hringtorginu, Patrol að slide o.s.frv. allt kvöldið, menn voru bara bókstaflega að missa það í spól, þræl nördalegt alveg þó sumir þessara gutta megi eiga það að þeir eru ágætis ökumenn;). Það hefði verið algjör hátíð fyrir marga vini mína ættaða utan Selfoss að vera þarna sl. föstudag, t.d. Þór B. Óla eða Bjartmar frændi, ég saknaði ykkar ekkert akkurat þarna ;)

Laugardagur
í gær var síðan alveg gríðarlega óvenjulegur dagur, ég vaknaði ekki þunnur (skrítin tilfinning) og fór heim til Spergens, en hann var búinn að plata mig og Stefán Hauk til að vera driverar........já ég sagði driverar með honum í óvissuferð sem hann var búinn að skipuleggja fyrir Gylgjugræjur (vinkonuhópurinn hennar Málfríðar)

En ég held að Spergen megi eiga það að hann er nokkuð góður í að smíða svona, fyrst var það súpa og brauð heima hjá honum, þaðan fór hópurinn í myndatöku hjá Gumma Kalla, að því loknu fór hann með hópinn í studioið hjá Einari Bjöss þar sem þær tóku upp lag sem Reynir (kærasti Birnu Spergen) var búinn að semja um hópinn (nokkuð frumlegt).
Eftir þetta var farið í bæinn þar sem farið var með stúlkurnar á Mecca Spa á Hótel Sögu, sá staður vakti upp skemmtilegar svo vægt sé til orða tekið minningar úr steggjaveislunni hans Unnars Steins

Unnar þessi bað að heilsa þér


Magnað hvað þessi stól sem Unnar var vaxaður í (þar til rjúfa þurfti þá útsendingu) er líkur þeirri ímynd sem maður hefur af rafmagnsstólnum ;)


Annars voru stelpurnar svo æstar í að komast í spa-ið að einhver þeirra hreinlega gleymdi að loka hurðinni af bílnum hans Stebba og skildi hana bara eftir opna í miðri Reykjavík ;)

Á meðan þær voru þarna fórum við í íbúð sem Spergen var með á láni í Hafnarfirði og græjuðum hana aðeins áður en hópurinn kæmi þanngað í grillmat. Við fórum síðan og náðu í þær aftur og þrátt fyrir að hafa verið þarna hálftíma áður var mér alveg GJÖRSAMLEGA fyrirmunað að rata aftur í þessa blessuðu íbúð, hún er eiginlega bara hvergi í Hafnarfirði!!! Fyrir þá sem áhuga hafa þá geri ég ráð fyrir að þær fjalli einhvað um þessa ferð sína í máli og myndum á ÞESSARI SÍÐU.

En við skutluðum þeim niður í bæ um ellefu leytið. Ég gerði svo einhvað sem ég hef ekki gert í mörg ár, þ.e. rúntaði í rvk um helgi eftir miðnætti með Spergen.....það er ég var að keyra!!!! Við t.d. hentum Fannari og Skara niður í bæ og ég var ekki kominn heim fyrr en um þrjú í nótt.

Þetta var alveg ágætt að taka eina svona helgi, en á sama tíma gott að vera búinn að riðja edrú helginni í ár úr vegi og stefni ég á gott come back um næstu helgi í golfmóti Árborgar sem ég kem til með að vinna ásamt Gessa Gau ;)

(nei ok það gætu nokkrar svona helgar farið að koma inn á milli ;)

Að lokum þá er nokkuð gaman að sjá poolarana í upphafi tímabils og er staðan t.d. þannig í dag að þeir eru að slátra litlu liðunum með 4-6 marka mun. Til dæmis er munurinn á ManJú og Liverpool í dag orðinn sá að á meðan hetjur í United eins og Ronaldo og félagar þurfa að gera ÞETTA

Þá eru meira að segja menn eins og PETER FOKKINGS CROUCH í Liverpool með svona stelpum

;)

antí sportistar:
A - það er alltaf nýtt sér möguleika á böggi milli þessara liða
B - lesa antí sportistar síðuna mína!!!
C - maður hefði nú haldið að Ronaldo og félagar hefðu borgað nóg til að þær myndu nú þegja yfir þessu ;o)

En ég segi þetta gott í bili, redda mér kannski myndavél næstu helgi.

Myndir frá slútti eru hérna



ahh eitt enn, þeim sem finnst nýja miðbæjarskipulagið á Selfossi bara alveg ágætt, vilja að ljótur hjallur eins og Pakkhúsiðalveg mega víkja......já eða bara vilja án allra formála fá Selfoss aftur eins og bærin var ´93 hvattir til að KÍKJA HÉRNA INN OG SKRÁ SIG, þetta er nokkuð góður húmor og ágætis skot ;)

Að eilífu ENTER
 
Einar Matthías
Þið strákarnir stóðuð ykkur með eindæmum vel. Þessi óvissuferð var snilld frá toppi til táar...ekki verra að vera drævaðar um allt á 3 audium! ;) Spergen er alger snilli í skipulagningu.

En takk fyrir gærdaginn :) ég vona að þú hafir getað skemmt þér eitthvað með okkur ruglupíunum og ég gleymi alltaf hvernig myndavélin á að snúa...sný henni alltaf alveg óvart að mér ;)
02. september 2007 klukkan 21:40
Gott blogg :-)
02. september 2007 klukkan 22:59
Ég náði myndum af ykkur Sævari á sviðinu í Úthlíð... þú getur sótt þær á Myspace-ið mitt ef þú vilt skella þeim inn ;)
03. september 2007 klukkan 16:11
Ofsalega var gaman að fá alvöru fréttir frá Íslandi aftur. Það gæti verið að ég sé með gigg fyrir ykkur í Cambridge hérna í Kaupmannahöfn. Er það nokkuð mál?

En að missa af spólinu á Selfossi - djö......bara svekkjandi...

Kær kveðja frá Köben.....
03. september 2007 klukkan 16:48
Einar MatthíasHrabba - hehe já ţetta var ágćtis one off helgi, en já linsan á ađ snúa frá ţér ;)

Josiha - thanx

Soffía - hehe fjandinn....ég sakna ţess ţegar ég tók mydnina....ţ.e. var ekki á henni :p

BćringZ - hahaha Cambridge eru KLÁRLEGA TIL í gigg í Köben, Máser, er ekki líklegt ađ viđ verđum ţarna í kringum páskana? (Bessi er búinn ađ bóka okkur nánast ţanngađ til)
En ertu annars bara ađ missa ţađ í spól í Köben? og ţú í fjarnámi ţađ bara getur ekki fariđ vel.............. hvenćr ferđu í lćrdómshelgina á Spáni til ađ lćra ALLANN áfangann? hahahaha ;o)
03. september 2007 klukkan 21:31
Ef þú ætlar að vera með fótboltabögg þá passaðu að linkurinn sé réttur annars virkar punchlinið ekki.
04. september 2007 klukkan 20:44

Skrifa athugasemd