Auglýsing

Babú

  • Nafn: Einar Matthías
  • Netfang: einarm@ru.is
  • Stađur: frá Selfossi

MSN og mail

einar_matti@hotmail.com
einarm@ru.is

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Teljari





Statscounter





Leit

Dagbók Babú - lala Selfosshelgi og Slobodan A. Borisson

13. nóvember 2007 klukkan 23:11
Undanfarin ár hef ég verið vanur því að vera gjörsamlega á kafi í próflestri og/eða verkefnavinnu á þessum árstíma, þó ég gangi nú ekki svo langt að segja að ég sakni þess á nokkurn hátt þá er ég að komast að því betur og betur að þetta er sá árstími sem mér finnst hvað leiðinlegastur, mér hefur reyndar alltaf fundist það, það er langt í sumarið og sumarið endanlega en þó tiltölulega nýlega búið. Frasinn hans Fannars, Living for the weekend á vel við og þegar maður er farinn að hugsa það á föstudegi hvað það er stutt í næsta mánudag þá er ekki von á góðu. :)

Með þennan skemmtilega formála þá held ég að það sé óhætt að segja að sl. helgi fari ekkert á lista yfir topp djömmin hjá mér í sumar. Ég fór í fyrsta skipti í þó nokkurn tíma austur fyrir fjall og svei mér þá ef ég fari ekki bráðum að viðurkenna að þetta er orðinn algjörlega steindauður bær þar sem djammið samanstendur af mestu af fullum útlenskum karlmönnum í ljótum fötum.

Anyhow......... þegar ég var að koma austur bað Leifur mig að koma við í Horninu fyrir sig til að kaupa sígó.......... hann ætlaði bara að greiða mér þegar ég kæmi


....og jú góðir hálsar, hann Leifur stóð að venju við sitt og greiddi mér fyrir!!!
Hefði getað séð þetta fyrir......



Annars markar þessi mynd tímamót, þar sem þetta er fyrsta myndin sem birtist hér sem tekinn er af Slobodani Andrési Borissyni (Bodan), en ég lét góðan félaga minn sem ekki vill láta nafn síns getið kaupa fyrir mig þennan líka fína arftaka Boris á uppsprengdu verði í útlöndum. Þannig að leiðinda röfl yfir leiðinlegum færslum* hérna fer vonandi minnkandi

Slobodan Andrés Borisson fékk annars nafn sitt á þrennskonar hátt, Slobodan kom eftir MSN spjalla hjá mér og Skara þar sem við vorum að brainstorma yfir möguleg nöfn á arftaka Boris, Skari kom með Slobodan og það var strax ákveðið. Andrés sem allajafna sagðist hata Boris eins og pestina vildi endilega að ég fengi mér nýja vél og lagði grunninn að því og fær því þann gríðarlega heiður að fá myndavél skírða eftir sér. Borisson segir sér svo auðvitað sjálft.

* fólki sem finnst þessi síða leiðinleg er leiðinlegt btw.


En föstudagskvöldinu eyddi ég ásamt Má, Vigni, sonum hans Viðars og stráknum í kókómjólkurauglýsingunni "heima" í Starmóa, þar sem við t.d. fórum yfir þræl margar hugmyndir af merkingum á boli, t.d. á nýja línu af hinum geysivinsælu Cambridge bolum


Þessi hugmynd af Cambridge bol fékk ekki hljómgrunn



Slobodan nær mikið raunverulegri mynd af Má en Boris gerði

Þegar klukkan var að detta í tvö fórum við á Kaffi Krús í svona fimm mínútur (driverinn (Jónína) þurfti einhvað að fara þanngað)

Það inni sáum við blessunarlega þennan sem hafði tekið það að sér að drekka fyrir MEST (og) allann vinahópinn.................þessi mynd segir líka mest allt um stemminguna þarna inni þó það heyrist ekki á henni í elsta syni virts rakara á Selfossi syngja ;)

En það var semsagt farið frekar snemma heim að sofa því að daginn eftir ..................


.....var ég mættur rétt eftir ellefu......fyrir hádegi key word hérna.....niður í grunn á húsinu sem Hebbi og Leifur eru að smíða sér (sko parhús), að skafa timbur eins og eðal austur evrópumaður.
Það er nú bara þónokkuð síðan ég hef gert einhvað svona verklegt.....


Poppararnir að gera sig "gagnlega" í verkstjórinni og guð má vita hvað Glans er að segja þarna!! líklega að sýna hvað Ingólfsfjall er hátt á hæsta punkti....og hann fór of hátt btw.


Það er eins og ég segi, Bogdan er að ná Má mun betur en Boris var að gera!!!

En eftir góðan vinnudag með Viðari og sonum hans, Viggó, Má og Sævari Gísla fórum við heim til Leifs að glápa á Liverpool - Fulham og éta pizzu og drekka bjór...

Alls ekki vanmeta hvað mér finnst þetta fyndið............

.....en ég plataði Leif, sem greinlega er ekki búinn að venjast því ennþá að ég sé aftur kominn með myndavél, til að stilla sér aðeins upp í tilefni af því að hann var að fá sína fyrstu gullplötu um síðustu helgi eins og ég kom..............ekki inná í dagbók fyrir síðustu helgi!!! (síðasta helgi var btw. allstór djammhelgi sem innihélt bolta, Klaufa og Nýdönsk en ég nenni ekki að fara yfir hana).

Reyndar vil ég af þessu tilefni lýsa yfir frati á þá staðreynd að Leifur sé ekki löngu kominn með gullplötu eftir feril sinn í OFL.


Það var þema yfir leiknum að trommmarar litu við og meira að segja Hanni Bach kom með come back eftir nokkura mánaða útlegð frá Selfossi.
ATH: Hanni Bach og Come Back eru ekkert skyldir.

En leikurinn var síðan ágætur þó ég hefði ekki beðið í það að Ásgeir Braga* hefði látið svona helgina áður þegar Gestur Guðjóns horfði með honum á boltann.

Ásgeir Braga er nýja viðurnefnið hans Mása og það er líklegt til að haldast. En Geiri er ein versta tegund sem til er af United manni.....sama hvort talað sé um hinn raunverulega Ásgeir eða Má.

Já og þið sem skiljið ekki þetta skot á Gessa þá á hann það til í ca. 98% tilvika að flippa allhressilega út yfir boltanum og pirrandi sessunautum (oftast nóg að bara vera þarna) ;)


Öfugt við það sem Vignir hélt fram þá lá markið sem Torres skoraði ekki rassgat í loftinu.



.........og nei þetta var ekki heldur fyndið þegar ég tók myndina........er þó að vinna á ;)

Eftir leikinn færðum við okkur yfir til Sævars þar sem ég fór líklega í síðasta pókerinn minn heima hjá Sævari í einhvern tíma, ég hef bæði ekki nógu mikinn áhuga á póker og er bara alls ekki nógu góður í þessu til að spila þetta og styrkja Sævar í hvert skpiti......en hann er btw. massa góður í þessu.
Þór, láttu hann/mig vita þegar það er næst mót hjá pókernet.is, væri til í að sjá hvar þetta kvikindi stendur........

.....og talandi um kvikindi þá átti Jói Árna, sem allajafna er ótrúlega lúmskt orðheppinn, líklega bestu setningu kvöldsins um þennan líka f..........a "hund" hans Sævar

"Þetta heitir nú ekki hundur í minni sveit"


.........ath. þrátt fyrir ítrekarðar ábendingar frá mér hafa Sævar og Halldóra ekki tekið vel í það að skíra tíkina Brittney sem auðvitað hefði verið eina vitið

En eins og ég kom inná áðan þá var Leifur alls ekki búinn að átta sig á því að ég ætti orðið myndavél aftur.......

nauhhh

huuu

já nei

skvííííí

Gott Baldur minn, gott



Leifur og Baldvin voru ansi oft "úti" í pókernum og tóku það eiginlega alltaf bókstaflega


Einar Glans kíkti á endanum við og fór aðeins yfir þetta með okkur.....


Helvíti er þetta góð mynd
, Már mannstu þegar ég rétti þér þetta og bað þig um að setja þetta í hanskahólfið á bílnum mínum þegar þú varst að fara???? (hann fór sko á mínum bíl á Draugabarinn þar sem hann var að vinna)

Hvað gerðir þú í raun og veru við þetta? (hleðslutækið af myndavélinni það er)


Stebbi Magni tók upp á þeirri nýbreytni að vera ekki í 2.sæti og endaði því mjög naumlega í 3.sæti. Stebbi Magni hatar btw. Sævar Gísla.....og annað sæti




...Stebbi þú ættir kannski bar að vera í einhverju öðru sæti?





er það bara ég eða eru "brandararnir" okkar að fara versnandi???


og talandi um Bandara .....SMELLTU HÉR........án gríns do it ....þá er verið að leita að honum




Jói sem ég hélt með út spilið skilaði sér í annað sætið og hlaut að launum þennan fallega fýlusvip...........

...........en eins og við strákarnir erum að komast að betur og betur....reyndar grunsamlega mikið heima hjá Sævari............þá er póker einfaldur leikur þar sem 7-8 manns koma saman og spila spil sem endar á því að.........

....að Sævar vinnur $%$#%%#

(Sævar enn og aftur, mæli ég með að þú forðist að lenda í einhverskonar fjárdráttar hneyksli..... ég á orðið of margar myndir ;)

Eftir þetta spil og hundleiðinlegt Spark spil þar sem gjörsamlega ekkert féll með mér og Jóa skelltum við okkur á Draugabarinn á Stokkseyri!!!! Þetta var í fyrsta skipti svo ég muni sem ég fer að djamma á Stokkseyri og mér fannst það svo hrikalega gaman að ég var eiginlega búinn að lofa mér að vera bara alls ekkert að því aftur á næstunni....................................................þau áform fóru auðvtiað í vaskinn þegar ég sá að OFL af öllum böndum er búið að bóka sig þanngað 15.desember og ég sem einn harðasti OFL aðdándinn fer nú varla að missa af því!!! Það er ekki loku fyrir það skotið að Cambridge hiti upp fyrir þá, glasalyftingar strákar?


Hún Erna okkar í Bermúda var að spila þannig að ekki var það hljómsveitin sem var að vinna gegn Stokkseyri.....það bara soundar ekki rétt að djamma á Stokkeyri (sry Bjarni ;) og það er pirrandi að vera hálfpartinn fastur þarna uppfrá þar til ballið er búið.

Það þarf svo auðvitað engann vísindamann til að átta sig á því að þetta endaði alltsaman í bullandi slagsmálum.

Hér læt ég staðar numið í frásögn minni af þessari "eftirminnilegu helgi", stefni á frekar rólega helgi næst, svei mér þá, hausinn er líklega stilltur á próflestur ennþá

...........þannig að byrjun des er málið, Óskar klár? ;)

...eða ekki.

Hér eru síðan örfáar myndir sem ég tók um helgina
_______________________________________________________________________

Hér eru síðan öllu fleiri myndir sem ég tók á Boris en náði ekki að "framkalla"
Þær eru frá HR útilegunni og Menningarnótt

smá prewiew á þær myndir.....

ok ég verð líklega að segja þetta á greinilegri hátt þar sem margir kunna ekki að lesa

ÞAÐ SEM KEMUR HÉRNA FYRIR NEÐAN ERU MYNDIR SEM VORU INNI Á BORIS ÞEGAR HANN DÓ, teknar 18 og 19 ágúst í HR útilegunni og á menningarnótt

Óskar var einmitt í essinu sínu


Já alveg rétt, Kobbi frumsýndi Gróu (kærustuna sína) þarna............og ég hefði því líklega ekki þurft að kynna mig fyrir henni um síðustu helgi.....aftur!!! Sry Gróa ;)


Svona 0-10, hvað mannstu mikið eftir HR útilegunni Tinna? :p


Líkt og stelpa frá Hveragerði gerði (hey vá) fyrir ca. tíu árum þá datt Bjarki í það edrú......og fór létt með það


Óskar var mjög skýr í stefnu sinni hvað varðaði útlendinga og að sofa í fellihýsinu sem hann og Björg voru með........"út ég vil engja helvítis flóttamenn"

....svo þeir enduðu svona greyin


Árborg spilaði sinn síðasta leik daginn eftir HR útileguna

(ehhh Stebbi, hefði ekki verið meira töff að taka boltann í þetta??? Hann er ekki sá sleipasti í keilunni)


Já alveg rétt, ég átti afmæli þennan dag og fékk MIKIÐ af drykkjum og skotum fyrir vikið......þannig að uppfrá þessu man ég ekki mikið, Boris dó stuttu eftir að þessi mynd var tekinn og ég skellti í mig, svo mikið að ég veit ekki ennþá alveg afhverju ég er ennþá með þetta stærðarinnar ís-skilti hema hjá mér og því síður hvernig Leifur náði að redda fari á undan einhverri stærstu leigubílaröð þessa árs....hjá snarbiluðum pólverjum sem tóku okkur uppí þrátt fyrir að það þýddi að þeir væru með yfirfarþega........hættið svo að blóta pólverjum

.....en já, ég veit annars ekki ennþá afhverju ég vaknaði á vindsænginni inni í stofu með Einari Glans!!!!!!


Það er kannski við hæfi að síðasta myndin sem tekin var á hina goðsagnakendu myndavél, Boris var tekinn af einhverjum besta söngvara landsins, Ómari Berg Torfasyni og það á sjálfan afmælisdaginn minn, Berguson er btw ekkert drukkinn þarna.


.......síðan kom einhver belja og hellti duglega yfir Boris þannig að það má segja að hann hafi dáið við að gera það sem honum þótti skemmtilegast.


Good times

MBK.
Babú

Einar Matthías
djööööö... ég mæti sko 15.des á O.Fl!! ekki spurning... og Einar, það er ALLTAF gaman að djamma á eyrinni!! það hefur aldrei brugðist...:)
14. nóvember 2007 klukkan 12:51
Ţórir
 
Hva ég dýrkaði Boris, hvað er Drési að tauta!! Ég panta næsta Cambridge bol ;)
Til hamingju með gullplötuna Leifur (Klaufar) hulstrið af disknum sem ég keypti gleymdist í bílaleigubílnum sem við tókum í Berlín...OG nauðguðum
14. nóvember 2007 klukkan 16:22
Einar MatthíasÉg get sýnt ţér dćmi um ţađ afhverju Drésa var illa viđ Boris, en ég nenni ekki ađ leita.....en hann var laumi ađdáandi eftir alltsaman.

Og hvort eru ađ tala um ađ viđ höfum nauđgađ bílnum, hulstrinu eđa disknum??? Viđ fórum ekki einu sinni í 200 bílaleigubílnum allavega.;-)

Ţess má annars geta ađ ţjóđverjar eru ekkert ţeir ferskustu í útvarpsmenningunni ;)
15. nóvember 2007 klukkan 00:18
Ég fer frekar á draugarbarinn en í 101. En næsta djamm hjá mér verður örugglega ekki fyrr en 15. des og þá verða allir á draugabarnum.
15. nóvember 2007 klukkan 00:43
Eygló
 
ekki sammála svo skemmtilegur árstími!!
15. nóvember 2007 klukkan 13:49
OFL og Ofl góðir á Stokkseyri. Einar bróðir er að sýna að hann sé stærri en Ingólfsfjall
15. nóvember 2007 klukkan 18:15
Ţór BóLa
 
Ég læt þig vita hvenær næsta Pokernet.is mót verður...

Kær kveðja frá Köben,

Þór BóLa

PS. Áfram Garðabær
15. nóvember 2007 klukkan 18:40
Djöfull er þetta massívt blogg, maður fær bara léttan fiðring í magann.

Hlakka til að komast á ball með OFL 15 des, gargandi snilld.

Það gengur náttúrlega ekki að Sævar vinni öll pókermótin, vona að það verði eitthvað spilað í desember.

Keizer.
22. nóvember 2007 klukkan 15:34

Skrifa athugasemd