Dagbók Babú - tónleikar, djamm í Rvk. og Monkís
24. september 2006 klukkan 23:16

Eftir afar rólega helgi um þá síðustu tók var mér ekki stætt á öðru en að taka aðeins á því um þessa helgi.....
Fimmtudagur: Smellið á daginn til að sjá myndir
Fimmtudagurinn var undirlagður í stúss fyrir styrktartónleikana fyrir Þóri (í Styrk). Þetta var hugmynd sem meðlimir karlakórsins fengu þegar við héldum fótboltamótið í sumar og höfðu samband við Sævar um hvort við værum ekki til í að hjálpa til við að undirbúa þetta. Það var auðvitað ekki nema sjálfsagt og hafa þeir Jón Hlöðver, Sævar og Hebbi Viðars unnið ötullega síðustu vikur að undirbúa massa tónleika sem byggðir voru upp á Selfysskum böndum.
Karlakórinn byrjaði, síðan komu Skímó og rifu upp góða stemmingu, eftir þá komu, These Days (17-18 ára guttar), Kvartett Krisjönu Stefáns, svo tók stórsveitin Oxford við og lokaatriðið var snilldarbandið Uppþot þar sem Gummi litli (hans Tóta Ingólfs) fór gjörsamlega á kostum.

Skimó náðu upp hörku stemmingu hjá ungu krökkunum í salnum

Hin stórkostlega og óviðjafnanlega (já ég er að reyna tala mig inn á gestalista) hljómsveit Oxford (systursveit Cambridge) steig villtan dans.
Eftir tónleikana, sem fóru aðeins framyfir tímamörkin var sett met í að taka hratt til, enda mjög mikið af hljóðgræjum og stólum sem þurfti að rusla úr húsinu á no time. eftir það fórum við á Pakkhúsið þar sem við náðu heilum tveimur bjórum.........aðallega samt út af því að Einar Þorgeirs gleymdi að ná í mig og Má eins og hann ætlaði að gera.
(ég ætlaði að taka fullt af myndum frá þessu en var með vélina stillta á allt of góð gæði svo ég fer til Magnúsar Hlyns til að fá hans myndir líka,sko til að láta Þóri og Guðrúnu fá sko)
Föstudagur: Partý hjá má og djamm í 101
Eins og vanalega var ekkert planað á flöskudaginn þar sem ég er í fokkings skóla á fokkings laugardögum........ það breyttist auðvitað um leið og ég fattaði að það var ekki skóli og haldið var til Más í AFAR súrt partý.
Þessa partýs verður aðallega minnst fyrir nokkurþúsund aulabrandara með Glans í forystuhlutverki og einelti á Gunnar tvíbura sem er gjörsamlega fyrirmunað að svara fyrir sig og skildi alls ekki hvað það var sem okkur fannst alltaf svona fyndið og urraði bara út í eitt.
En þetta kvöld er kannski merkilegt fyrir það að nú var ég kominn með Boris aftur.........

Eins og ég sagði, afar súrt partý.
Einar fór reyndar á kostum þarna, eftir eitthvert geðsýkisflippið á Víði laumaði Einar sér inn í skáp hjá Má, fann hvíta jakkann hans og gekk í honum að Víði.....Viltu koma hérna með mér vinur.
Eins þegar Gunnar öskarði ÉG VAR AÐ MEINA EINHVERJA SVONA mynd (hann var að klikka á spurningu í trivial) þá rauk Einsi upp út á svalir og tilkynnti öllum íbúum stúdentagarðana að hann hafi verið að meina EINHVERJA SVONA MYND, með því að öskar það af svölunum (líklega had to be there moment)

Stebbi afrekaði það að brjóta stól heima hjá Má...og sagði við það tækifæri að þeir væru alltaf ver og ver gerðir þessir bölvuðu stólar nú til dags!!!

Þessi stóll var t.d. mjög illa gerður og Stebbi átti í miklu basli að komast upp aftur.
Þetta endaði svo á því að Einsa gekk afar illa í drykkjuleiknum og Gunnar varð háværari og háværari. Hann öskarði því á Einar eftir enn eitt skotið, þegi þú bara þarna stóri friðungurinn þinn!!! (hvað það þýðir veit enginn og hvort það sé gott eða vont er ennþá meira á huldu, en það er víst að Gunnar er afar slappur í að svara fyrir sig). p.s. Víðir er btw graðvöxtur svk. orðaforða Gunnars..en þetta nýyrði varð til við svipað tilefni.
Eftir að leigubíll var búinn að gera sitt allra besta til að okra hressilega á okkur fargjaldinu niður í bæ fórum við ýmist út úr bílnum (TEK EKKI ÞÁTT Í ÞESSARI VITLEYSU, sagði Einanr) eða var hent út úr honum (Gunnar og Stefán) þá allavega löbbuðum við bara niður í bæ, sem var fínnt í blíðunni sem var á föstudagskvöldið.

Rokkpiss að hætti Stebba í Reykjavíkurtjörn........

Már Ingólfur og Ingólfur Már hittust við mikinn fögnuð þeirra beggja.

Ingólfur Már og Már Ingólfur, skiptust á símanúmerum og ætla að gerast pennavinir.
Er niður í bæ var komið fórum við út um allt og hittum hina og þessa, sem einkendist mjög af því að fólk vissi e-ð um það hver ég er en ekki öfugt!!!! Shit er ég svakalega ómannglöggur. En já við fórum t.d inn á fokkings Pravda (ég þoli ekki Pravda og Hressó) þar sem Einar Glans rukkaði eigandann um launin sín nánast því að hætti handrukkara með Má sér við hlið sem átti líka inni laun. Að því loknu fórum við loksins á Celtic Cross, en dæmi um hvað bærinn var dauður e-ð á flöskudaginn er t.d. að það var ekki trúbador á Celtic.
Þurftum endilega að fá okkur Guiness þarna inni.... held að það sé eitthvað samhengi með því og þynnkunni sem ég lenti í daginn eftir.Þegar eftir að ég og Glans vorum búnir að vera þarna í smá tíma komu hinir þanngað líka (Már, Gunnar og Stefán) og hér á eftir ætla ég að sína smá dæmi um það hvernig Gunnar vinnur í kellingarmálum sínum............
1.
2.
3.
4. 
5.

Eða sko
1. Stelpa situr ein við barinn
2. Már hittir vippar sér að stelpunni og fer að knúsa hana.
3. Már og stelpan kyssast og stefna á giftingu og barneignir hið snarasta
4. Már bregður sér aðeins frá til að segja okkur hinum stóru fréttirnar.
5. .........da da ra Gunnar skerst í leikinn og hrifsar til sín stelpuna.
Eða eins og Jakob segir, ALDREI skilja stelpurnar ykkar eftir hjá tvíburunum.

Alveg rétt, ég hitti sjálft Rauða Ljónið á Celtic en hann býr núna í Danmörku. Einnig var eitthvað meira af liði þarna inni sem maður kannast við....
Þarna var einnig Ragheiður Antons (systir Einars Ottó). Var einmitt að giska á hvaða módel hún væri, byrjaði ´83, ´84, svo ´skaut ég á ´85 nei andskotinn ertu ´86 módel? ég er afar sjóndapur og lélegur í svona enda um unglegt ´79 móedl að ræða!!!
En þrátt fyrir tiltulega rólegt kvöld var ég ekki kominn heim fyrr en um sjö, þá nýlega búinn að hlusta á klukkutíma ræðu hjá Má um það hvernig hann ætlaði að fokkings berja einhvern fokkings útlending í fokkings klessu (sá gaur reyndi að kýla hann fyrr um kvöldið)
Laugardagur: Þynnka og Monkís
Eftir heila þrjá tíma að svefni hringdi Vignir í mig frá The Park í Liverpool og uppfrá því var ekki séns að sofna aftur sökum hausverks. Mikill gestagangur var engu að síður íkringum leikina, sem voru í heildina afar ánægjulegir þennan daginn........
Liverpool tók Tottenham í kennslustund að viðstöddum Gumma og Jóhönnu, Ninnó og Berglindar og Baldvins, Lalla og Vignis. hefur ekki verið mikið leiðinlegt hjá þeim. KR stal svo evrópusætinu frá Val á SÍÐUSTU stundu (asnalegt að segja frá því að á meðan Spergen var á Val-KR var ég heima að horfa á Ryderinn).
Fylkir hélt sér uppi þrátt fyrir mjög heiðarlega tilraun til að falla í 1.deild.
Rúsínan í pylsuendanum var síðan að David Vokes og félagar í Reading náðu jafntefli við Man Utd þar sem stuðningsmenn Reading sýndu stórliðinu litla virðingu á snilldarlegan hátt með því að syngja hástöfum "who the fuck are man united" (verst að CSKA London og Arsenal unnu).
En á meðan öllu þessu stóð gekk mikið á...........

....ég var svo þunnur að ég notaðist við kalda bjórdós til að vinna á hausverknum........
Víði sem þarna var kominn á svæðið fannst rosalega gott að vera ekki þunnur á sama tíma og við hinir vorum að deyja og sleppti því aðeins af sér beislinu...........

......... og dansaði stripptískan dans.
ATH: Einar (Babú) stökk fram af svölunum er hann sá þessa mynd og því mun ég (Unnar Steinn) taka við og klára að segja frá kvöldinu hjá Babú og co.
Svona var Babú þegar hann vaknaði við Víði dansandi á sér.Þegar leið á daginn fóru strákarnir í körfu og e-ð og stungu mig síðan bara af á Selfoss. Ég náði ekki hintinu og elti þá bara austur og endðum við í partý heima hjá Gunnari og Stefán (gömlu eru uti).
En það er þó nokkuð merkilegt að vera þar innandyra, sjónvarpið er frá því fyrir textavarp, bakaraofninn er sá fyrsti sem framleiddur var í heiminum og við vorum að hlusta á vínil plötur (sem btw er cool).
Framlag Más í hver er maðurinn!!! Glöggir sjá að þessi tveggja síma maður á leiðinni eitthvað annað er auðvitað Gestur Guðjóns (sem síðan var bara sauðslakur á Selfossi allt kvöldið)

Þarna má sjá mjög góða mynd af Gunnari tvíbura....... í öðru veldi

Einsi Glans gjörsamlega missti það í partýinu......
Einar að sýna einhverjum sem spurði hvernig Ragnheiður Antons lýtur út En já áfram með smjörið, þegar klukkan sló ca. 0:30 stóð Babú upp og tilkynnti formlega að hann væri hættur að vera þunnur eftir kvöldið áður og í kjölfarið var drullað sér to the Pakkhús á Monkís, rétt áður var Gunnar aftur orðinn frekar hávær......reyndar svo hávær að Stefán hljóp út með volume takkann sem við gáfum Gunnari á Árborgarslútttinu og ætlaði að lækka í Gunnari, snéri takkanum sem gerði Gunnar bara ennþá háværari.....á sagði Stefán þessa snilldarsetningu "Æ SHIT ÉG HÆKKAÐI ÓVART".....
Alltaf jafn fyndið að heilsa hljóðfæraleikurum með handarbandi á meðan þeir eru að spila.
Eins og sagt var þá missti Glansinn það gjörsamlega.
Á einhverju stigi Pakkhúsins fékk Babú þá "snjöllu hugmynd að reyna að ná kynþokkafullu myndinni af fólki.....og gerði það við hvern þann sem varð á vegi hans með afar misjöfnum árangri...
Sólrún stóð sig nokkuð vel
Bryndís var bara ekki alveg að skilja þetta
En Stefán hefði bara alls ekki átt að fá að vera með......
Með þessum er ákaflega erfitt að vinna enda svara þeir alltaf allir í einu. (Steinar, Einar og Einar)....
Vissuð þið þetta með Ingþór og Ívar Atla?
Félag Íslenskra Einara var síðan stofnað í Pullaranum
Kvöldið endaði síðan á því að Má tókst að hræða þessa stelpu út úr pylsuvagninum með dágóðum slatta af Skúla Más töktum og mjög háværu bauli........klárlega had to be there moment, en hrikalega fyndið.
Hér eru myndir sem voru teknar um helgina
P.S. Sæunn takk fyrir brjóstsviðapillurnar saved my life.
P.S.S var í bíó með Fancy Boy á Þetta er ekkert mál (fyrir Jón Pál) og hún er vægast sagt frábær og algjört must see.
endilega verið óhrædd við að tjá ykkur í commentum.......
Kv. Unnar Steinn (og Babú þanngað til það kom að dansi Víðis)
Einar Matthías

Ekki vera fúll við mig, biðst afsökunar á hvað ég var leiðinleg við ykkur Glansarann.
Lofa að vera mest hress þegar við hittumst næst og þá býð ég á barinn í sárabætur ;o)
-Bermuda