Topp Ten
08. október 2006 klukkan 01:23

Eftir langan dag þrældóms og lærdóms er ég núna heima að reyna að gera það upp við mig hvort ég eigi að fá mér öl í kvöld eða ekki. Í kjölfarið á þessu miklu vangaveltum mínum fór ég í svona High Fideltidy pælingar og bjó til TOPP 10 lista yfir bestu fyllerí og helstu “djammfélaga” mína þetta árið og þá auðvitað aðallega þetta sumarið. Svona einskonar tribute til þeirra eftir sumarið......
Topp 10 djammfélagar
1. Már:
Það er óhjákvæmilegt annað en að setja Már á toppinn á þessum lista enda höfum við djammað og djúsað óhugnalega oft á þessu ári enda báðir þannig úr garði gerðir að vera oftast til í eitthvað grín. Már má eiga það að hann býr yfir mögnuðu drykkjuþoli og er ALLTAF til í eftirpartý, sama hvaða dag djammað er. Már á einnig mestu þynnku ársins, en það var eftir afar langt djamm í Danmörku, önnureins læti man ég ekki eftir að hafa heyrt á salerni síðan ég lenti á næsta bás við Valla Matta á klósettnu hjá Hveragerðishorninu í FSu. (Máser var btw að æla). Að lokum má geta þess að það er að mestu Má að þakka hversu öflugur Boris hefur verið undanfarið.
Svona 95% djammana
2. Leifur
A very very close second er Leifur Viðars. Það hefur varla verið djamm hjá mér í ár sem annaðhvort ég, Leifur eða báðir stöndum að einhverju leiti á bakvið og flest öll fylleríisupphöf hafa verið í Sóltúninu. Leifur eins og Már fer alltaf í eftirpartý leit enda ávallt ferskur eftir miðnætursturtuna. Eins er Leifur að sjálfsögðu yfir gítarleikari hópsins enda er partý ekki almennilegt án Morris.
"Strákar KOMUM Einar nennir ekki að hanga hérna lengur"
Svona 92% djammana
3. Óskar
Að venju hefur Óskar farið á kostum þetta sumarið og er magnað að sjá hversu Captain Morgan gerir manninn mannblendinn. Þori ekki að setja bögg hér á Óskar af ótta við hefndaraðgerðir
"Ojjj ertu að hommast með einhverri stelpu þarna homminn þinn".
Svona 83% djammana
4. Jakob
Kobbi hefur verið afar virkur í sumar og ávallt jafn stein hissa á sjálfum sér daginn eftir, strákurinn er náttulega með orku á við meðal virkjun. Það kemur þó fyrir að það slokkni á Kobba og að gormurinn stífni, daginn eftir eitt slíkt atvik fékk hann pabba Leifs til að óttast mjög samkynhneigð sonar síns er Kobbi kom útkrotaður, ber að ofan og í pilsi til dyra á sunnudagsmorgni. Kobbi er þriðji gítarleikari hópsins og og eini harmonikkuleikarinn.
Svona 79% djammana
5. Fannar
Óvenju dapurt sæti hjá Fannari en það orsakast mest af því að hann er of oft í bænum og stundum að vinna á laugardögum.
og Fannar svo endutek ég..... "Þú skal svo spila á útivelli, útivelli, útivelli"
Svona 78% djammana
6. Sævar Gísla
Hefur nú oftast verið einhverstaðar nálægur en mátti lengi vel ekki gera mikið enda “atvinnumaður” í krassspyrnu og mjög áhyggjufullur um að dyravörður Pakkhúsins (Glansarinn) verið einhverntíma spurður af Séð og Heyrt hver sé mesti djammarinn. En þegar strákurinn lyfir sér upp er hann hress og Stjáni Blái eftir spínatskammtinn sinn and keeps going and going and going and going.
Svona 77% djammana
7. Einar Glans
Strákurinn hefur hreinlega farið hamförum í ár með hrikalegt magn af aulabröndurum sem hitta ávallt mjög vel í mark í þessum hóp, smá bjór + Glans = HLÁTUR vel og lengi.
iiiiiii
Svona 61% djammana (stundum edrú reyndar)
8. Stefán og Gunnar
Bræðurnir hafa oftast verið á svæðinu alltaf hægt að treysta á að þeir reyni að komast á Holm-inn. Afar glaðir í bjór.
Svona 60% djammana (allavega með annanhvorn viðstaddan)
9. Addi Braga
Hefur verið glettilega oft á djamminu miðað við að búa í danmörku og á ávallt partýið. Á inni mikinn plús fyrir geðbleika fararstjórn í danmerkuferð Árborgar og svakalegan dans heima hjá Jóa Bjarna sem var frumsýndur á slúttinu.
Svona 25% djammana
10. Vignir Egill
Viggó hefur oftast verið einhverstaðar nálægur og er óumdeilanlega annar gítarleikari hópsins. Hefur þó misst af útihátíðunum sökum spilamennsku annarsstaðar.
Svona 55% af djömmunum.
Svona er mín tilfynning fyrir því að þetta hafi verið, auðvitað gert án nokkurra útreikninga né neitt mikillar hugsunnar.....
Aðrir sem komu til greina á listann en komust ekki (ekki í neinni röð)
Búni, Gummi Kalli, Hrafnhildur, Kristín Hrefna, Heiðrún, Stebbi Magni, Teddi, Unnar, Ninnó, Margeir, Biggi A, Eyþór, Dúddi, Gestur, Spergen, Lalli, Vignir, Sævar Sig, Hebbi Viðars, Helgi og Hlynur, Baldvin, Binni Bjarna o.fl. sem ég að gleyma (sorry, verið eftirminnilegri bara)
Topp 10 Djömmin
1. Þjóðhátíð 2006
Að vanda var GEÐVEIKT á þjóðhátíð. Þessi fer á sama stall og eyjar 2005 og einkendist af óhugnalegu magni af brandörum og frábærum hópi Hnohna leikmanna og velunnara þeirra. La Vita Bella
Maður helgarinnar: Óskar Ei og Einar Glans
2. Danmerkurferð Árborgar
Ég var í liðstjórnarteymi Árborgar í fyrstu æfingaferð liðsins til Danmerkur og er óhætt að segja að það hafi verið snilldarferð frá A-Ö.
Maður ferðarinnar: Addi Braga skuldlaust
3. Hallgeirsey 2006
Hnohnamenn settu mikinn lit á háskólaútileguna í ár. Munurinn á þessari hátíð og Skóga 2005 var helst sú að núna var mjög mikið af Selfyssingum (ekki bara ég, Leifur, Óskar og Davíð) og gríðarleg stemming okkar á meðal og þarna líkt og í fyrra var endanlega ákveðið að það yrði Þjóðhátíð í ár.
"ohhh ég segi ekki fyndinn brandara nema á svona 100 brandara fresti"
Maður helgarinnar: Óskar Ei sprettur og brandarabókn Helgi Bárða
4. Stórdagur Stjarfra Strandvarða
Mjög mikill snilldar dagur þar sem nánast allir meðlimir tippfélagsins sáluga, Stjarfra Strandvarða komu saman í fyrsta skipti. Þessa helgi tók ég bara á því annað kvöldið sökum hjólaferðar frá Rvk til Selfoss og almenns risadags sem var að mestu í minni umsjá.
Maður dagsins: Jón Spergen hnakkapabbason enda hjólaði hann með mér og Már Björnsson.
5. Slúttið hjá Árborg
Var í skemmtinefnd á slúttinu og má því ekki hrósa því um of, en skemmti mér allavega konunglega, enda ekki annað hægt hjá þessum frábæra hópi sem hefur veriið afar samheldinn í sumar.
Maður helgarinnar: Gummi Kalli, sem hætti sem formaður, Addi Braga sem átti video-showið og uppboðið og Jakob sem bjó til hestagalla úr sparifötunum.
6. Árborg Open
Líkt og í fyrra var Árborg Open einn af hápunktum ársins og frábærlega að honum staðið hjá Hnohna að vanda. Snilldar hefð sem komin er til að vera. Ekki skemmdi fyrir að Bjórbandið hélt uppi stuðinu til að verað fimm um nóttina.
Maður helgarinnar Leifur Viðars og Valli Reynis, blessunarlega er bara einn Valli Reynis
7. Fimm daga 17.júní helgi
Rosaleg helgi þar sem hvert djamið rak annað og það var hvert öðru skemmtilegra, svona helgar eru bara snilld.
Maður helgarinnar: Allir sem fóru á "barnaball" í Gunnarshólma
8. Óvissuferðin kviknakta – Afmæli Bigga
Svakaleg svakaleg svakaleg óvissuferð fótboltaliðs með MJÖG MIKLA strípiþörf. Hrein snilld frá A-Ö......en guð minn almátthugur vantar kvennalið hjá Árborg.
Maður helgarinnar: Bigga A sem átti afmæli og Jói Bjarna fyrir bail ársins í rokkhlaupi. Einnig frá Kobbi og Ninnó prik fyrir að hlaupa naktir yfir Ölfusábrú.
9. Menningarnótt og afmæli Unnars/Babú
Enn ein rosahelgin, Unnar og ég áttum afmæli, það var menningarnótt og allt að gerast. Föstudagskvöld var tekið í Keflavík og á laugardeginum var sungið af innlifun á Arnarhól með kerti og Guiness
Maður helgarinnar: ég og Unnar klárlega enda 25 ára gamlir.
10. Áramótatipparapartý Margeirs og Adda
Þetta partý var milli jóla og nýárs og setti í raun tóninn fyrir árið. Eftirpartý sem haldið var í Sóltúninu í mikilli óþökk Margeirs var algjör snilld.
Maður helgarinnar: Addi Braga fyrir að halda frábært eftirpartý í Sóltúninu.
Aftur er ég að gleyma nokkrum mjög góðum djömmum en þetta er það næsta sem var í grend við listann:
Styrktarmót, Afmæli Fannars, Partý hjá Má og Monkís, Póker x 5, Stórpartý Spergens
Þessi listi hefur kveikt hjá mér löngun ásamt símatal frá Óskari svo að ég verð kengbeyglaður á Kaffi Krús í kvöld (af öllum stöðum) so see jú
Einar Matthías

Sumarið 2009 verður sumarið mitt.* Stefni á topp 5 hjá þér þá.
Kv.
c",)
*Sumarið 2009 ætla ég að prófa heróín, reyna að komast á ástarfleyið, fá mér Dobermann hund og vaxa á mér magann. Sjáið bara til.