Auglýsing

Babú

  • Nafn: Einar Matthías
  • Netfang: einarm@ru.is
  • Stađur: frá Selfossi

MSN og mail

einar_matti@hotmail.com
einarm@ru.is

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Teljari





Statscounter





Leit

Dagbók Babú – smávćgileg og Boris-laus (aftur)

11. október 2006 klukkan 15:30


Ég var í raun ekki eins rólegur um helgina og mér fannst ég vera, en gleymdi hinsvegar Boris tvisvar í bænum nákvæmlega hérna (sit sko í sófanum í Þórufellinu)
 

Föstudagur:
Á föstudaginn var ég búinn að ráða mig í mjög virðingarfullt og mikilvægt hlutverk drivers fyrir Sævar Gísla sem var að skipuleggja óvissuferð fyrir æsku vini sína. Venjulega er ég AFAR neikvæður þegar kemur að því að keyra fullt fólk í lengi tíma en frá A-B en þar sem ég þekki þessa gaura nú nánast alla (Vokes, Strumpur, Himmi Hæna, Kalli Bongo, Sævar, Árni Leó o.fl) lét ég tilleiðast, enda skóli daginn eftir. Þetta var svosem ágætis rúntur og mikil reynsla að heyra allar þesar hetjusögur þeirra af skeiðvellinum í æsku sem í stuttu máli er þannig að þeir voru alltaf á einni og sömu stelpunni, eða hér um bil J
Annars held ég að það sé svipað hjá bílstjórum fyllibytta og hjá læknum og vegargerðarmönnum, þagnarskyldu er krafist, þannig að ég fer eftir því.
En já ferðin hjá þeim var nokkurnvegin svona, berjum stolið og farið í túttubyssustríð í Laugadælaskói (sem ég hef ekki komið í í 127 ár)........já ég sagði túttubyssustríð, Víðivellirnir labbaðir og gert dyraat í hverju húsi (reyndar mín hugmynd). Étið á pizza, farið í draugasetrið með fullt af föngulegum kennurum og afar margir brandarar sagðir, farið Stokkseyrarhringinn og fengið mjólk í kaffið á Dótamóti (Lækjarmót).....btw það var enginn með kaffi. Síðan var endað hjá Sævari í home made pub quiz sem ég og Sævar smíðuðum.
Í því bar það helst að Helgi (bróðir Jennýar) gat ekki spilað né haldið kjafti sökum ölvunar og var meinuð þáttarka á endanum og sagt að halda kjafti,, Himmi Hæna kepti hljómborð á ESSO og spilaði óspart á það,  Gummi Strumpur helti ÞRISVAR niður á 2. mín (hélt nú að þegar þú misstir próið að þú hefðir lært að gera ekki sömu mistökin ÞRISVAR!!!!) og Árni Leó AF ÖLLUM MÖNNUM lét það fara gríðarlega fyrir brjóstið á sér þegar gert var góðlátlegt grín af helstu hetjum Selfossbæjar, reif pub quiz svarblaðið og hótaði að fara í bæinn (þessu náði ég öllu á video og hlakka mikið til að sjá það).
Annars var þetta partí orðið svo súrt um ellefu og menn orðnir svo sauðdrukknir að ég smellti mér bara heim að sofa og mætti “ferskur í skólann daginn eftir. 

Laugardagur:
Var í skólanum til fimm og fór þá í ríkið (keypti Carlsberg í barnastærðum) bara svona til vonar og vara. Það borgaði sig aldeilis því að þegar ég var að gera ÞETTA hringdi ÓskarEi og sagði mér að koma á Kaffi Krús á Kontrísveitina Klaufa (heitasta bandið í dag).Svo að ég fór minn barnastærðarbjór til Stebba Magna og sötraði hann ásamt Óskari og Björgu, Stebba Magna eitt, Stebba Magna ref, Stebba Magna OFL og Rakel.

Síðan fór ég með minn barnastærðarbjór á Kaffi Krús og var HUNDSKAMMAÐUR fyrir það af Mumma (eigandanum) sem sagði mér að hypja mig á barinn (man ekki eftir að það hafi þurft að segja mér að fara á barinn áður). En Klaufarnir voru góðir (þetta eru Hebbi, Leifur og Mummi), húsið var fullt og hörku stemming í þessum litla sal.

Síðan þegar kofanum lokaði klukkan tvö smellti ég mér yfir á Pakkhúsið þar sem í raun afar fátt markvert átti sér stað (enda enginn Boris til að hjálpa mér að muna það og enginn Már til að sjá um Boris) nema að ég fór að kalla Leif..... Fifi og ég sé fram á að það nafn geti náð fótfestu (móður hans eflaust til mikillar gleði) Fór samt síðastur út úr húsi (Glansinn skutlaði mér heim eftir vinnu) og mér fannst ég bara ekkert svo drukkinn......... það hefur líklega verið öðru nær meður..............
 

Sunnudagur:
 
..........................Ég man alveg eftir því að koma heim (Einar Glans,  var ég svo drukkinn?), náði mér í mjólk og kex (náði ekki Pullaranum) og settist fyrir framan sjónvarpið sem var akkurat að sína Formúluna (hverjar eru líkurnar á að það sé dagskrá klukkan 5:20?) líklega hef ég ekki náð að setjast í stólinn eftir að hafa kveikt á imbanum þannig að það eina sem gerðist var að ég sofnaði FAST og systir mín hlustaði á Formúluna, sér til mikillar gleði. Síðan eftir svona tvo tíma segist hún hafa rifið sig upp, slökkt á imbanum og ætlað að henda mér inn í rúm, það gekk þannig að ég bullaði einhverja TÓMA STEYPU í gríð og erg og endaði á því að fara inn í tölvuherbergi  þar sem ég lagðist í sófann og sofanði aftur, systur minni til óhugnalegar gleði og yndisauka.
Hún gafst blótandi upp og fór að sofa og ég vaknaði þarna kengbeyglaður um morguninn HELþunnur alveg.

Eftir að hafa sofið úr mér eins og ég gat, nokkrar klósettferðir og tvær sturtur ákvað ég að fara á Kenny (KFC) og pína ofan í mig einum Twister.
Það tókst nú á endanum og ég náði eftir að það að keyra allaleið út að FSu þar sem þessi blessaði Twister fór sömu leið út og hann kom inn ofan í saklausa ruslatunnu. Mission pína í mig mat klikkaði. Næst tók ég inn rótsterka panodíl sem ég leysti upp í vatni og lagaðist við það........ þremur tímum seinna. ÉG VERÐ stundum ÞUNNUR, elsku Unnur.
 

Mánudagur – Þriðjudagur
Var að iðnaðarmannast á fullu og í alveg sérdeilsipríðilegu veðrí í dag, fellibyl og rigningu. Annars er það bara lærdómur framundan fyrir utan að ég er að fara á landsleikinn á morgun eftir alltsaman. 


Almennt röfl
 

Kristín Hrefna – Hvaða voða reykvíkingabragur er á þessum spólað til baka pistli þínum í Blaðinu í dag (í gær sem sagt...þ.e. á þriðjudaginn)?

“kíkja á hnakkamenninguna á Selfossi”
“enginn rúntur sem er afar óvenjulegt”
“venjulega Selfosshnakkamenning..... er það Pakkhúsið”?
“Hebbi aðalhnakkinn” ..... þekkir þú ekki Má?
“Köntrísveit en ekkert Skímó”
Og hitt og þetta............ 

Vinnufélgi minn var að fussa yfir þessari grein og sýndi mér hana hneykslaður, ég þóttist nú þekkja höfundinn og býst við að þetta sé sett fram sem kaldhæðnishúmor á ímynd Selfossbæjar, en ef ekki hættu þá í guðsbænum að skrifa um okkur eins og Reykvíkingur með þessa brengluðu hnakka ímynd sem 99% Reykvíkinga hafa á Selfyssingum.

J
 Annars segi ég, blessunarlega er “sveitódjammið” á Selfossi einfaldara og almennt afar frábruðgðið djamminu í bænum.Síðan varstu þarna á laugardaginn ekki flöskudaginn, söngst með af innlifun og virtist skemmta þér svipað vel og ég í þessari “nýju” stemmingu J  

Áfram Selfoss
 

Vinir mínir í Vegargerðinni
Eruð þið ekkert að grínast með Hellisheiðna, á bara aldrei að setja fjandans miðlínuna í þessi svæði sem var bætt upp í. Þetta er mjög hættulegt í myrkri og þetta er STÓRHÆTTULEGT í rigningu, ÞOKU og myrkri eins og var á heiðinni þegar ég fór yfir hana áðan. Á tímabili var ég bara að keyra þetta eftir minni og ég tel mig nú sjá alveg nógu illa til að þeir fari nú ekki að minnka merkingarnar. Reyndar á náttulega bara að byggja anna veg við hliðina og gera þetta helvíti þannig tvöfalt. Hreiðar og co bara í málið kviss bamm búmm. 

Thank u very nice og goodbye
 
  
Einar Matthías
c",)
 
Nafnið Fifi er upptekið. Fiatinn minn heitir FIFI (reyndar stolið frá Árna MadMan)...

You are all gay.

That is all.
11. október 2006 klukkan 15:42
Kristín Hrefna
 
Sæll Babú minn;)

Ég hef aldrei fengið eins mikil viðbrögð við neinu sem ég skrifa og þessum spólað til baka pistli og mér finnst það frábært... Því að það eru flestir sem skilja að þetta er skrifað í kaldhæðni. Ég er að gera góðlátlegt grín að þessari ímynd sem við Selfyssingar höfum og sína það að hún er eins fáránlega og að allir Reykvíkingar er séu í lopapeysum en já ég viðurkenni að ég ruglaðist á dögum. Ég vil benda á það að ég skrifa ekki eins og Reykvíkingur því ég skrifa það mjög skírt að ég hafi farið á Krúsina gagngert til þess að slúðra um SVEITUNGA MÍNA. Ég er alls ekkert að setja mig á háan stall og viðurkenni það mjög fúslega að ég skemmti mér konunglega og söng með hástöfum eins og þú sagði Babú;) Enda er ég ekki vön að gera neitt nema gera það hástöfum...

Ég vona innilega að ég hafi ekki móðgað neinn... og held að myndin að Imprezuni og hestinum hafi undirstrikað það að þetta er grín! Enda held ég að flestir hafi skilið það...

Ástæðan fyrir því að ég skrifaði ekki um Már sem aðalhnakka er einfaldlega sú að hann er ástkær eiginmaður minn síðan í sumar og maður má ekki dissa þá sem maður er giftur! (þetta er skrifað í gríni:)

Kær kveðja
Kristín Hrefna ofur Selfosspía og mega hnakki!
11. október 2006 klukkan 16:35
hahaha eins og ég sagði las ég það nú út líka, bara smá bögg.

Allir reykvíkingar eru annars í lopapeysum, bleikri úlpu og með græna húfu :-)

Hvort er það grín að að megi ekki dissa þá sem maður er giftur eða að þú hafir verið gift Má? (ekki þræta fyrir giftingu ykkar Más, Unnar Steinn gaf ykkur saman við hátíðlega athöfn í Fossnesti).

Annars get ég nú ekki sagt að ég hafi móðgast við þetta enda ekkert að móðgast yfir, en vá er þessi ímynd sterk hérna í bænum, undantekningarlaus ef maður missir það útúr sér að maður sé frá Selfossi kemur þetta skot og ótúlega margir eru bara ekkert að grínast!!! :-)

mamma þín er hnakki

you´re all gay

that is all
11. október 2006 klukkan 17:48
Ég er sár sár sár móðgaður...

Getur maður lesið þessa grein á netinu einhversstaðar kannski?
11. október 2006 klukkan 17:58
Spergen
 
Vá var þetta fyndin grein hjá Kristínu!!!
Ég er ekki móðgaður fyrir fimmaur og er ég nú með þektari hnökkum á selfossi (Einar getur staðfest það!).
12. október 2006 klukkan 20:57
Ég er sármóðgaður. Það er ekki minnst einu orði á mig í þessari grein. piff.
13. október 2006 klukkan 19:15

Skrifa athugasemd