
Á þeim rúmu tveimur árum sem blog.central.is/stjarfir hefur verið starfrækt hefur hún vaxið mikið og dafnað og breyst þó nokkuð frá upprunalegri hugmynd hennar. Ég er búinn að byggja hana mikið til upp og skrifa langflestar greinar á hana og var svo komið að ég vildi fara að skrifa meira um það sem var efst á baugi hjá mér sjálfum. Því ákvað ég að draga þesskonar færslur mínar út úr Stjörfum og hafa þær sér á minni persónulegu síðu www.babu.bloggar.is þar sem stórar greinar mínar (t.d. dagbók Babú eru ekki fyrir eða hamla því að menn bulli e-ð á Stjörfum. Reyndar hafa Stjarfir lengstum verið frekar mjög mikið óvrkur hópur þannig að ég hef stundum átt í basli með að finna línuna milli persónulegs bloggs og hópbloggs og stundum fundist greinar mínar skapa pirring þar.
Einnig er minn kunningja hópur ekki endilega alltaf sá sami og félaga minna þar.
Þannig að eftir smá umhugsun held ég að þetta sé bara lang einfaldasta lausnin, mínar típísku færslur koma inn hér ásamt því sem ég bulla eitthvað áfram á Stjörfum líka......enda held ég að ég geti alveg verið á tveimur bloggum
Þannig að endilega smellið http://babu.bloggar.is/ í tenglar á síðunni ykkar, krotið í gestabókina og addið í favorite
________________________________________________________________________________________
SAGA Stjafra Strandvarða
Stjarfir Strandverðir er sértrúarsöfnuður frá Selfossi sem í grunninn skipa þrír meðlimir (eins og skytturnar hjá þarna franska homma-kommanum Dumas) Dúddi, Glundur og Babú.
Einu sinni fyrir langa löngu voru þessir þrír meðlimir Stjarfra ekki alltaf sammála og hélt þessi þrennig út tveimur síðum Stjarf frá Staupasteini sem haldið var út af Dúdda, sem þá var ranked sem ólíklegasti bloggari sögunnar!!!
Þegar þeir Glundur og Babú fóru að sjá hvernig Dúddinn gat skrifað "dagbók" (helvítis blogg-ógeðis-drasl eins og við kölluðum það) án þess að tapa steikt-leikanum ákvað Glundur uppá sitt eins(a matt)dæmi að kveikja á tölvunni og skrifa um hugleiðingar sínar, stuttu seinna bættist svo Babú (ólíklegasti bloggarinn af þessum þrem) í lið með Glundur og úr varð hin stuttlífa en öfluga Glundur.
Báðar þessar gömlu síður höfðu það framyfir Stjarfa að þær voru ekki háðar því að margir ókunnugir læsu þetta og því meira bullað og skotið á hvorn annan alveg án þess að hugsa. En svo áttuðum við okkur á að það væri alveg hægt að böggast hvor út í annnan á sömu síðunni og eins myndi það vera einfaldara uppá að sameina tippkeppnina sem við stundum nokkrir saman.
Því varð úr Stjarfir Strandverðir og meðlimum með aðgang fjölgað upp í 11 (Einar, Óli, Lalli, Unnar, Fannar, Gummi, Jón, Bergur, Þói, Bjarki, Jobbi).............kunnari hér sem...... (Babú, Dúddi, Glundur, Matlock, Fancy Boy, GeeBee, Spergen, Lilli, Þói, Wonderkid, Seppi) manns sem hafa hér aðgang og tipphópurinn gengur undir nafninu Stjarfir Strandverðir.
Fljótlega kom í ljós að megnið af þessum nýja hópi eru harðduglegir iðnaðarmenn sem líta niður til skólkrakka sem gera ekki annað en skrifa á tölvu, aðrir eiga ekki tölvu með netaðgang, sumir eru bara allt of feimnir til að skrifa fyrir "alla" okkar lesendur, sumir hafa ekki hugmynd um hvað "ég"´ætti eiginlega að skrifa um, sumir segja ennþá helvítis-blogg-ógeðis-drasl, við erum ferkar ósamansettur vinahópur o.s.frv...................og videre
Þannig að eftir standa að mestu Babú og Dúddi með bullið enda gott fyrir þá að steypa út einhverstaðar sínum hárfínu og djúpu aulabröndurum ásamt því auðvitað að greina fólki frá raunverulegum tilgangi lífsins!!!
En einstaka sinnum minna hetjur eins og Glundur, Matlock og Spergen á sig með smellnum greinum eða þá greinum um að Babú og Dúddi séu klikk og eigi sér ekkert líf. (eins og þessi lesning sýnir, Saga Stjafra Strandvarða..... og þetta er skrifað kl: 2:22 á föstudagskvöldi á einum bjór!!!!!........................ reyndar í bjórbanni frá lækni)
....that´s all folk´s Stjafir eru ekkert að leggja upp laupana....... eflumst ef eitthvað er.
